Fara í efni
Mannlíf

Fræðslufundur á vegum Stangaveiðifélagsins

Fræðslufundur á vegum Stangaveiðifélags Akureyrar (SVAK) verður haldinn á þriðjudagskvöldið í næstu viku, 23. apríl. 

Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga og Högni Harðarson, starfsmaður Fiskirannsókna ehf. fjalla um þætti sem varða flesta stangveiðimenn.

  • Markaður og verðþróun
  • Aðstaða og aðgengi
  • Hagkvæm nýting

Í tilkynningu segir að Jón Helgi stikli á stóru um þætti sem varða markaðssetningu og verðlag og komi víða við. Högni mun fjalla um gerð nýtingaráætlanna, með hagsmuni fiska og stangveiðimanna að leiðarljósi.

Fundurinn fer fram í Einingar-Iðju í Skipagötu 14, frá 20:00 – 22:30. Heitt verður á könnunni og veitingar í boði. Tekið er fram að allir séu velkomnir.