Mannlíf
Frábær mæting á Matarmenningarhátíð
17.04.2026 kl. 14:30
Fjölmargir félagsmenn Einingar-Iðju komu í Hof til að gæða sér á kræsingum frá 12 mismunandi löndum. Mynd: ein.is.
Í gær bauð Eining-Iðja félagsmönnum sínum á Matarmenningarhátíð í Hofi, þar sem félagsmenn frá 12 ólíkum löndum buðu upp á smakk á mat frá sínu heimalandi. Óhætt er að segja að félagsmenn hafi tekið vel í viðburðinn og fjölmenntu í Hof til að smakka á kræsingunum.
„Það var virkilega mikil gleði og afslappað andrúmsloft á meðal gesta á meðan þeir nutu veitinga sem í boði voru. Hátíðin fór fram í Hamragili í Hofi í ár en greinilegt er að við þurfum að gera ráð fyrir meira plássi næst,“ segir Tryggvi Jóhannsson, varaformaður Einingar-Iðju, í frétt á vefsíðu félagsins. Að sögn Tryggva mun félagið pottþétt endurtaka leikinn síðar og miðað við viðtökurnar í gær geta félagsmenn strax farið að hlakka til næstu matarmenningarhátíðar félagsins.
- Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá hátíðinni, sem birtust á vef Einingar-Iðju og fleiri myndir má sjá þar.



