Fara í efni
Mannlíf

„Flugdagur“ – sjáið myndir Vigfúsar

Fyrsta farþegaflugið! Súlan, Junkers F.13 sjóflugvél Flugfélags Íslands númer 2, þegar hún kom fyrsta sinni til Akureyrar 4. júní árið 1928. Vélin bar einkennisstafina D-463. Fjöldi fólks safnaðist saman í flæðarmálinu við Strandgötu. Í fjarska er Torfunefsbryggja sem upphaflega var gerð árið 1905. Mynd: Vigfús Sigurgeirsson

Upp er runninn árlegur Flugdagur Flugsafns Íslands og af því tilefni birtir Akureyri.net nokkrar magnaðar myndir Akureyringsins Vigfúsar Sigurgeirssonar, þess kunna ljósmyndara. Myndirnar, sem allar eru teknar fyrir tæpum 100 árum, birtast hér með góðfúslegu leyfi sonar hans, Gunnars Vigfússonar ljósmyndara. 

Dagskrá Flugdagsins er frá kl. 13:00 til 16:00. Aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir 13 ára og eldri. Dagskrána má sjá neðst í fréttinni.

Vigfús Sigurgeirsson tók fyrstu loftmyndirnar af Akureyri, árið 1931. Þetta er ein þeirra. Efst til hægri er Barnaskóli Akureyrar, það hús var tekið í notkun árið 1930. Lengst til hægri fyrir miðri mynd eru Sigurhæðir, húsið sem hjónin Guðrún Runólfsdóttir og þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson létu reisa 1903.

Súlan, sú fyrsta af fjórum Junkers F.13 sjóflugvélum sem Flugfélag Íslands númer 2 tók á leigu frá Þýskalandi. Vélarnar voru notaðar til farþegaflugs, póstflutninga og síldarleitar á Íslandi á árunum 1928 til 1931, þó aldrei nema tvær í einu. Myndin er tekin, eins og bæði sú efsta og neðsta í þessari grein, þegar Súlan í kom í fyrsta sinn til Akureyrar 4. júní 1928. Mynd: Vigfús Sigurgeirsson.

  • Vigfús Sigurgeirsson fæddist á Stóruvöllum í Bárðardal árið 1900 og lést 16. júní 1984.
  • Vigfús var ljósmyndari á Akureyri frá 1923, starfrækti eigin ljósmyndastofu þar 1927-1936 og rak síðan umsvifamikla ljósmyndastofu í Reykjavík.
  • Vigfús var sérlegur ljósmyndari ráðuneyta og forseta Íslands frá upphafi. Vigfús tók kvikmyndir í öllum opinberum ferðum forsetanna Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar, hérlendis og erlendis.

Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari, þriðji frá hægri í dökkum jakkafötum, bíður þess að fara um borð í Veiðibjölluna, eina Junkers F.13 sjóflugvéla Flugfélags Íslands númer 2. Veiðibjallan kom til Íslands sumarið 1929.

DAGSKRÁ FLUGDAGSINS Í DAG

  • 13:00 Svæðið við Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli opnað
  • 13:20 Flugmódelfélag Akureyrar færir Flugsafninu nýtt módel af Grumman Goose flugbát að gjöf
  • 13:40 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra setur Flugdaginn
  • 14:00 Flugsýningin hefst, þátttakendur eru meðal annars:
  • Flugsveitin sýnir listflug
  • Tékkneski flugherinn
  • Landhelgisgæsla Íslands
  • Þrjár kynslóðir sjúkravéla
  • Gyrosveitin
  • Flugsystur
  • Eina sjóflugvélin á landinu

Að auki gefst gestum kostur á að skoða:

  • P-8 kafbátaleitarflugvél bandaríska sjóhersins
  • Twin Otter vélar Norlandair
  • Beechcraft B200 King Air sjúkraflugvél Norlandair. Slökkvilið Akureyrar verður á staðnum með búnað til sjúkraflutninga til sýnis
  • DC-3 Landgræðsluvélin Páll Sveinsson verður opin gestum
  • Flugskóli Akureyrar verður með kynningu á flugnámi

Junkers F.13 sjóflugvél Flugfélags Íslands númer 2 þegar hún kom fyrsta sinni til Akureyrar 4. júní árið 1928. Vélin bar einkennisstafina D-463. Fjöldi fólks safnaðist saman í flæðarmálinu við Strandgötu. Mynd: Vigfús Sigurgeirsson