Fara í efni
Mannlíf

Fjórða Margrétin í flota Samherja – fer á loðnu

Samherji hefur keypt skoska uppsjávarskipið Christina S og kom skipið til Reykjavíkur í gær. Skipið hefur verið skráð hér á landi og mun það bera nafnið Margrét EA 710. Þrjú skip hafa áður borið þetta nafn í sögu Samherja. Greint er frá þessu á vef fyrirtækisins í dag.

Skipið var smíðað í Noregi árið 2008 og er 72 metra langt og 15 metra beitt. Á vef Samherji segir að Margrét EA 710 sé vel búið skip á allan hátt og að aðalvélin hafi aðeins verið keyrð í 16.400 klukkustundir. Þrettán kælitankar eru í skipinu og rúma þeir samtals liðlega tvö þúsund tonn af fiski.

Fyrirhugað er að Margrét EA 710 haldi fljótlega á loðnumiðin. Skipstjóri er Hjörtur Valsson.