Fara í efni
Mannlíf

Fjölmenn hátíð og gleðin við völd – MYNDIR

Myndir: Rakel Hinriksdóttir

Þjóðhátíðardagurinn er senn að kvöldi kominn, en þrátt fyrir svolítinn úða af himnum ofan, var vel mætt til hátíðahalda á Akureyri. Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitarinnar á Akureyri var á sínum stað, en það var gengið frá gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og hersingin mætt á flötina í Lystigarðinum kl. 13.00. 

Eftir nokkur vel valin lög fyrir gestina frá Lúðrasveitinni, setti Ragnar Hólm hátíðina. Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárkirkju, fór með bæn og blessun og svo var tekið vel undir söng Kórs Glerárkirkju. Valmars Väljaots lék undir og stjórnaði. Það var sérstaklega hátíðlegt að taka undir þegar kórinn söng Lofsönginn, þjóðsöng Íslendinga, en ljóðið er vissulega eftir Matthías okkar Jochumsson. 

 

Hæstánægðir ferðamenn, sem voru svo heppin að detta óvænt inn í hátíðarhöldin og skemmtu sér konunglega. Mynd: RH

Ávarp fjallkonunnar var næst á dagskrá og að þessu sinni steig á svið í hlutverki hennar Kolfinna Líndal Arnarsdóttir, nýstúdent úr VMA. Það vakti athygli blaðamanns, að á svæðinu var nokkuð stór og samheldinn hópur erlendra ferðamanna sem skemmti sér konunglega við hátíðarhöldin og bað meðal annars um mynd af sér með fjallkonunni glæsilegu. Það hefur verið óvæntur glaðningur fyrir þau að ramba á þjóðhátíðarfögnuð heimamanna. 

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, hélt ræðu næst. Svo tók við skemmtidagskrá, söngatriði, dans og Hvolpasveitin mætti á svæðið. Á MA-túninu var mikið um að vera, en þar voru skátarnir með tívolíið sitt, hoppukastalar, andlitsmálning, matarvagnar og mikil gleði við völd. Það var ekki að sjá að dulítil rigning stæði í vegi fyrir því að fólk ætti góða stund saman. 

Blaðamaður Akureyri.net var á svæðinu og smellti af nokkrum myndum.