Fara í efni
Mannlíf

Fjölbreytt og flott árshátíð Glerárskóla

Vinningshafar á árshátíð Glerárskóla. Aftari röð frá vinstri: Tinna Sverrisdóttir, Ísar Óli Henrysson, Elena Soffía Ómarsdóttir, Ásbjörn Líndal Arnarson, Sigurður Jökull Ingvarsson, Bessi Ólafsson. Fremri röð frá vinstri: Anton Árni Jensen, Guðbjörg Sóley Friðþórsdóttir, Ísabella Jóhannsdóttir, Silja Huld Sigurðardóttir, Hafrún Linda Guðmundsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir.

Árshátíð Glerárskóla var haldin í síðustu viku með hefðbundnum hætti, þar sem ýmislegt var til skemmtunar og nemendur voru heiðraðir fyrir margvísleg afrek.

Eins og venjan er skreyttu nemendur skólann í hólf og gólf. Æfðu og settu upp metnaðarfulla árshátíðarsýningu sem flutt var í þrígang fyrir fullu húsi, þar sem m.a. mátti sjá frumsamda leikþætti, söng og dans. Hápunktur dagskrárinnar var flutningur nemenda í níunda bekk á völdum atriðum söngleiksins Ávaxtakörfunnar en texta verksins samdi fyrrum nemandi skólans, Kristlaug María Sigurðardóttir (Kikka).

Í anda einkunnarorða Glerárskóla sem eru hugur, hönd og heilbrigði er í tengslum við árshátíðina efnt til ljóða- og myndlistasamkeppni meðal nemenda, auk þess sem þeir nemendur sem best hafa staðið sig í skólaíþróttum, hvað varðar virkni, áhuga og ástundun, færni, hegðun og samskipti eru heiðraðir.

Alls bárust 75 ljóð í ljóðakeppnina en ljóðskáld Glerárskóla í ár er Elena Soffía Ómarsdóttir, 10. bekk, fyrir ljóðið 2100. Ísabella Jóhannsdóttir, 7. bekk, var í öðru sæti með ljóðið Bláa kápan og í þriðja sæti var Ísar Óli Henrysson, 2. bekk.

Silja Huld Sigurðardóttir, 7. bekk, var valin myndlistarmaður Glerárskóla en fjöldi nemenda tók þátt í keppninni. Í örðu sæti var Hafrún Linda Guðmundsdóttir, 8. bekk og Guðbjörg Sóley Friðþórsdóttir, 7. bekk, hafnaði í því þriðja. Dómnefnd þótt ástæða til þess að bæta við sérstökum hvatningarverðlaunum sem Anton Árni Jensen í 1. bekk hlaut.

Auk þess að vera valin ljóðskáld skólans varð Elena Soffía Ómarsdóttir, 10. bekk, útnefnd íþróttastúlka Glerárskóla. Karen Hulda Hrafnsdóttir, 8. bekk, var í öðru sæti og Tinna Sverrisdóttir í því þriðja.

Íþróttapiltur Glerárskóla var valinn Ásbjörn Líndal Arnarson úr 9. bekk. Bessi Ólafsson, 10. bekk, var í öðru sæti og Sigurður Jökull Ingvason, 9. bekk, í því þriðja.