Fara í efni
Mannlíf

Fjölbreytt Listasumar í fullum gangi

Listasumar á Akureyri er í fullum gangi. Hátíðin var sett 2. júlí og stendur til 31. júlí. Listasumar hefur verið með aðeins breyttu sniði í ár en nú er áhersla lögð á færri en stærri viðburði. Einnig hefur verið komið til móts við vaxandi áhuga á listasmiðjum og þeim fjölgað. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

„Hinir ýmsu viðburðir hafa verið á dagskrá það sem af er en hátíðin byrjaði með krafti í frábæru veðri og karnivalstemningu á Gildegi í Listagilinu. Við hvetjum alla til að kynna sér hátíðina og dagskrána en fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði í júlí sem tilvalið er að prófa,“ segir á vef bæjarins. Skráning er nauðsynleg í allar smiðjurnar og hér er hægt að sjá frekari upplýsingar.

„Alls konar gjörningar, tónleikar, listasmiðjur, sýningar og annað skemmtilegt verður á boðstólnum út júlí og má með sanni segja að ævintýrin verði til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman.“

Hendur iðnaðarins er stórskemmtileg ljósmyndasýning í Sundlaug Akureyrar. Nánar hér um sýninguna.