Fara í efni
Mannlíf

Fjölbreytileiki og mikil gleði í Vísindaskólanum

Vísindaskóli unga fólksins var nýlega haldinn í sjöunda sinn í Háskólanum á Akureyri. Skólinn er fyrir áhugasöm og fróðleiksfús ungmenni á aldrinum 11-13 ára og markmiðið að bjóða upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu.

Í skólanum fengu ungmennin að kynnast fimm þemum sem endurspegla fjölbreytt námsframboð Háskólans á Akureyri, einu á hverjum degi. Þau voru þessi, og öll gáfu þau tilefni til margvíslegra vangaveltna:

Fjármálavit og réttur barna
Hvað kostar það að vera til? Hver borgar? Hvað getur unga fólkið gert til þess draga úr eigin rekstrarkostnaði? Hvað gerir umboðsmaður barna? Hvers vegna þurfa börn umboðsmann? Hvernig nær maður sambandi við umboðsmanninn?

Í skóginum stóð kofi einn
Er það satt að það hafi verið skógur um allt í gamla daga? Hvað er tré lengi að vaxa? Hvernig ræktum við skóg og til hvers? Hvað er hægt er gera með tré annað en að horfa á þau? Listsköpun úr efnum úr náttúrunni.

Að glíma við hreyfingarleysi
Við eigum bara einn líkama. Hvað þurfum við að passa. Hvað gerist ef við hreyfum okkur ekki nóg? Hvernig vinna liðamót og af hverju fáum við bakverki? Vöðvar, sínar, taugar og samspil taugakerfis og hreyfingar. Ert þú gæðablóð? Gamlar íþróttir og nýjar. Glíma.

Mál og myndir
Hvernig getum við leikið okkur með tungumálið? Hvað eru til mörg tungumál í heiminum? Er flókið að búa til ljóð? Stuðlar og höfuðstafir, hvað er nú það? Búum til sögu og breytum henni í stuttmynd. Klippiforrit og myndmál. Hvers konar tungumál er myndmál?

Að fljúga eins og fuglinn
Hvenær lærði fólk að fljúga? Hvers vegna getur þung flugvél haldist á lofti en ekki við? Eigum við að hafa flugviskubit? Hvaða orku er hægt að nota til þess að fljúga um loftin blá? Íslenska flugsaga í eina öld.

Ljósmyndir: Vísindaskólinn/Axel Darri Þórhallsson