Fara í efni
Mannlíf

Fiskur er hefðbundinn jólamatur víða um lönd

Þráinn Lárusson undraðist þegar hann frétti fyrst af því að fiskur væri borðaður á jólum, rúmlega tvítugur; var þess fullviss að slíkt þekktist varla. 

„Í mínum huga var fiskur einfaldlega ekki jólamatur. Það hafði lengi verið siður í kristinni trú að neyta ekki kjöts á jólaföstunni og ég taldi að fólk hefði því fengið meira en nóg af fiski þegar jólin gengu í garð,“ segir Þráinn í matarpistli dagsins sem akureyri.net birtir í röðinni MATARÞRÁ-INN eins og aðra laugardaga. „Þegar ég nokkrum árum síðar fór að búa erlendis og kynna mér matarmenningu og siði annarra þjóða átti ég auðvitað eftir að komast að því að ég hafði rangt fyrir mér; fiskur er víða hefðbundinn jólamatur.“

Pistill Þráins: Fisk á disk á jólum