Fara í efni
Mannlíf

Fallegasti og best skreytti glugginn í JMJ

Jón Ragnarsson, einn eigenda Herradeildar JMJ, til hægri, tekur við blómvendi frá Þórgný Dýrfjörð, forstöðumanni Akureyrarstofu, í tilefni dagsins. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Herradeild JMJ bar sigur úr býtum í samkeppni um fallegasta og best skreytta verslunargluggann á Akureyri fyrir þessi jól. 

Akureyrarstofa stóð fyrir keppninni og var markmiðið að vekja athygli á fjölbreyttu úrvali verslana í bænum og þeim metnaði sem lagður er í gluggaskreytingar. Íbúar og verslunareigendur voru hvattir til að senda inn tillögur með því að birta mynd á Instagram.

Þótt margar verslanir séu vel skreyttar þá var þátttaka í keppninni heldur dræm, en nokkrar tilnefningar bárust sem þriggja manna dómnefnd lagði mat á. Einróma niðurstaða dómnefndar var sú að metnaðarfullar jólaskreytingar í gluggum JMJ stæðu upp úr. Löng hefð er fyrir veglegum gluggaskreytingum í versluninni sem stjórnendur hafa lagt áherslu á að varðveita, Akureyringum og gestum bæjarins til mikillar gleði, eins og segir á heimasíðu bæjarins.