Fara í efni
Mannlíf

Fákar og fjör hjá Létti í reiðhöllinni

Fákar og fjör, sýning hestamannafélagsins Léttis, verður í dag reiðhöll félagsins. Þar verður margt til skemmtunar sem ætti að höfða til allra sem hafa gaman af hestum en einnig til þeirra sem vilja koma og forvitnast, eins og talsmaður Léttis orðaði það.

Miðar verða seldir í reiðhöllinni frá kl. 14.00 í dag. Húsið verður opnað kl. 17.30 og sýningin sjálf hefst kl. 19.30. Matur verður seldur í veislusal hússins, Skeifunni, og þar mun Færibandið leika á balli frá kl. 23.30. Verð á sýningu og ball er 4.500 krónur en miði á ballið kostar 2.500 krónur. Ókeypis er á sýninguna fyrir 12 ára og yngri.