Fara í efni
Mannlíf

Fær ekki endurhæfingu – Saga Ólafs úr kerfinu

Fjórði pistill Ólafs Þórs Ævarssonar í röðinni Sögur úr heilbrigðiskerfinu, sem hann skrifar fyrir akureyri.net, birtist í dag. Ólafur Þór, geðlæknir til áratuga, vill með sögunum skrifa uppbyggilega gagnrýni á heilbrigðisþjónustuna.

„Ég vil nýta þá þekkingu sem ég hef eftir að hafa starfað svo lengi innan kerfisins og tjá athugasemdir sem ég heyri frá læknum og sjúklingum,“ segir Ólafur.

Í pistli dagsins segir hann frá manni sem glímir við andleg veikindi – og heilbrigðiskerfið.

Um skrif sín í pistlaröðinni segir Ólafur: „Ég vona að þetta örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum.“