Fara í efni
Mannlíf

Eva stýrir útliti verslana um allt land

Eva er sjónrænn stjórnandi (e. Country Visual Manager) hjá fyrirtækinu Arkir sem rekur fjölda alþjóðlegra fataverslana á Íslandi, þar á meðal Kappahl, Gina Tricot og Mango. Hún býr og starfar á Akureyri en ferðast reglulega um land allt til að sinna verkefnum sínum. Mynd: SNÆ

Kappahl og Newbie opnaði nýlega verslun á Glerártorgi. Á bak við uppsetninguna stendur Akureyringurinn Eva Þórarinsdóttir, sem hefur stýrt opnun fjölda verslana hér á landi á methraða síðustu misseri.

Eva er svokallaður sjónrænn stjórnandi (e. Visual Manager) hjá fyrirtækinu Arkir sem rekur fjölda alþjóðlegra fataverslana á Íslandi, þar á meðal Kappahl, Gina Tricot, Mango, ZO•ON, auk barnaverslana undir merkjum Emil og Línu. Eva býr og starfar á Akureyri en ferðast reglulega um land allt til að sinna verkefnum sínum. „Ég er með yfirumsjón með útliti allra verslana fyrirtækisins, alveg frá því að við fáum grunnteikningar og þar til búðin er tilbúin. Ég fer yfirleitt eina viku í mánuði suður og fer þá á milli verslana. En margt er líka hægt að gera með fjarvinnu í dag,“ segir Eva en undanfarið hefur verið óvenju mikið að gera hjá henni því fyrirtækið hefur bæði verið að opna nýjar Mango og Kappahl verslanir á Íslandi, eða samtals 10 verslanir á mjög skömmum tíma.

Eva stendur hér fyrir utan Kappahl á Glerártorgi. Kappahl er sænskt merki sem selur  barna-, dömu- og herrafatnað í klassískum skandinavískum stíl. 

Þjálfun í Madríd góður skóli

Eva er fædd og uppalin á Akureyri og hefur starfað við útlit verslana í um tvo áratugi. Hún fór m.a í útstillingarnám í Iðnskólanum í Hafnarfirði og byggði upp reynslu sína í starfi. Hún starfaði áður hjá Zara og fór í þjálfun til Madrídar í höfuðstöðvar fyrirtækisins. „Þar lærði ég allt frá grunni í glugga útstillingum & framsetningu í verslunum. Þetta var mjög agað umhverfi og ótrúlega góður skóli,“ segir hún. Þegar Eva er spurð nánar út í starf sitt sem sjónrænn stjórnandi segir hún að það sé fjölbreytt því þó alþjóðlegar reglur séu til staðar fyrir hvert merki þá þurfi samt alltaf að aðlaga verslanir að hverju rými. „Engin búð er eins. Sumar eru langar, aðrar breiðar þannig að maður þarf alltaf að úthugsa rýmið og gefa hverri deild sitt pláss.“ Þá segir hún að bak við uppsetninguna liggi einnig ákveðin sálfræði .„Það er hugsað út í það hvernig augað ferðast um búðina, hvað grípur athyglina og hvað er sett fremst“.

Þægilegar og tímalausar flíkur

Margir Akureyringar þekkja vel til Lindex sem áður var til húsa á Glerártorgi, á sama stað og Kappahl er núna. En hvernig verslun er Kappahl? „Kappahl er sænsk tískuvöruverslun sem býður upp barna-, dömu- og herrafatnað í klassískum skandinavískum stíl með þægilegar og tímalausar flíkur. Vöruúrvalið hjá okkur er nú meira en áður með tilkomu herradeildar og stærri stærða í dömudeildinni (XLNT - 3XL). Newbie er svo stjarnan okkar en það er barnafatamerki fyrir yngstu börnin sem margir kannast við og einkennist af rómantískum skandinavískum stíl. Fatnaðurinn er úr lífrænni bómull og á að endast á milli kynslóða,” segir Eva.

Léttir jakkar áberandi í vortískunni

Að lokum er ekki úr vegi að spyrja Evu aðeins út í vortískuna þar sem hún handleikur föt alla daga. „Léttari jakkar eins og „blazer" og „bomber" verða vinsælir, þá eru stuttir regnfrakkar (e. trench coat) að koma sterkir inn. Svo er gallaefni og ljósir litir áberandi.“ Þá segir hún að víðar buxur verði áfram áberandi, þó þrengri snið séu farin að skjóta upp kollinum aftur. En hvað með hana sjálfa, er hún ekki alveg fatasjúk verandi í þessu starfi? „Jú, maður þarf alveg að passa sig. Það safnast auðveldlega upp þegar maður er svona mikið í kringum föt. En það er eiginlega orðin regla hjá mér að ef eitthvað kemur inn, þá þarf eitthvað annað að fara út,“ segir Eva og brosir.