Fara í efni
Mannlíf

Enn betri aðstaða á Bjargi eftir endurbætur

Páll Hólm Sigurðarson, framkvæmdastjóri Bjargs við heitu pottana á útisvæðinu. Myndir: Skapti Hallgrímsson.

Nýlega lauk gagngerum endurbótum hjá líkamsræktarstöðinni Bjargi, sem meðal annars fólust í nýjum búningsklefum, uppfærslu á tækjabúnaði í tækjasal og enn betra og viðameira útisvæði.

Páll Hólm Sigurðarson, framkvæmdastjóri Bjargs, segir tími hafi verið kominn á að endurnýja búningsklefana en þá aðstöðu leigði Bjarg áður af nágrönnum sínum í endurhæfingarstöðinni Sjálfsbjörgu. Það hafi verið upphafið að framkvæmdunum, sem hófust í mars á síðasta ári. „Það voru flestir sammála um að gömlu klefarnir væru orðnir nokkuð sjúskaðir en ég er nokkuð sannfærður um að það hafi tekist vel til að uppfæra þá. Við steyptum upp 80 fm nýbyggingu til að koma þeim fyrir,“ segir Páll.

Nýir og glæsilegir búningsklefar eru kærkomnir.

Eftir þessar breytingar eru Bjarg og Sjálfsbjörg alveg aðskilin og auk nýrra búningsklefa var settur upp nýr inngangur og afgreiðsla. „Framkvæmdirnar gengu heilt yfir vel og kúnnarnir hjá okkur voru mjög sammvinnuþýðir með okkur í gegnum allt ferlið,“ segir Páll og er hæstánægður með útkomuna.

Nýr inngangur og afgreiðsla.

Útisvæðið hjá Bjargi hefur alltaf verið vinsælt og Páll segir að það hafi fengið mikla upplyftingu. Þar er nú að finna tvo 10 manna heita potta, kaldan pott, sánu og útisturtu. „Þetta svæði er gríðarlega vel sótt hjá okkur og er klárlega orðið hluti af æfingarútínu hjá mörgum. Einnig er þetta hluti af félagslega þættinum, þegar hópar sem eru á námskeiðum eða opnum tímum fara saman í pottinn eftir góða æfingu,“ segir Páll.

Útisvæðið er orðið verulega glæsilegt eftir upplyftinguna.

Endurbæturnar náðu einnig inn í tækjasalinn og nýr búnaður er kominn þangað inn. „Þar ber fyrst að nefna Pure Strength línuna frá Technogym en þau tæki er ekki að finna annars staðar á Akureyri og eru gríðarlega góð og vinsæl tæki. Einnig vorum við að fá sex ný hlaupabretti,“ segir Páll.

Nóg af nýjum tækjum í tækjasalnum.

Páll bætir við að vegna sívaxandi vinsælda heitu tímanna, þar sem innrauðar plötur eru hengdar í loftið og hiti upp rýmið, hafi heiti salurinn á Bjargi verið stækkaður sl. sumar. Nú komist 30 manns í hvern tíma í stað 20 áður. Innrauðu geislarnir hafi ýmis heilsubætandi áhrif. „Hitinn minnkar vöðvaspennu, bólgur og verki og hjálpar því til við að ná dýpri hreyfingu í vöðvana og framkvæma hreyfingar betur. Einnig lækkar innrauði hitinn blóðþrýsting , styrkir hjartavöðvann, eykur blóðflæðið og örvar æðakerfið,“ útskýrir Páll og bætir við að bæði sé boðið upp á lokuð námskeið og opna tíma í heita salnum, þar sem unnið með handlóð, bjöllur, bolta, teygjur og eigin líkamsþyngd.

Opnir tímar af ýmsu tagi eru í boði bæði snemma á morgnana, í hádeginu og síðdegis og flestir ættu að geta fundið tíma við sitt hæfi í tímatöflunni. Þá eru lokuð námskeið af fjölbreyttum toga einnig í boði með reglulegu millibili og þau sem vilja hvorki sækja opna tíma né fara á námskeið geta nýtt sér tækjasalinn og útisvæðið hvenær sem er frá morgni til kvölds.