Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: þekkirðu fólkið eða staðinn?

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hvorki er vitað hver tók mynd dagsins né hvar hún er tekin. Kannast einhver lesenda við fólkið á myndinni? Veit einhver hvort myndin er tekin á Akureyri eða, ef ekki, hvaða staður þetta gæti verið?

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hvar myndin er tekin og hvaða fólk er þarna á ferðinni eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR