Endurtekningar geta oft verið mjög gefandi
Stefán Þór Sæmundsson, sá magnaði pistlahöfundur, og Aðalsteinn Öfgar eru enn á spjalli, sjöunda laugardaginn í röð. Nú er það sjálft Ríkisútvarpið sem liggur þeim á hjarta.
„Síðustu árin sem ég var að vinna gat ég örsjaldan hlustað á útvarpið en með árunum fór ég að biðja og vona að Rás 1 yrði enn starfandi þegar ég færi á eftirlaun og ég fengi að hlusta á jafn áhugaverða þætti og voru á dagskrá þá.“
Aðalsteinn hefur orðið. „Svo fór ég á örorku og fékk kappnóg af tíma og viti menn, sömu þættirnir voru enn á dagskrá og svo aftur og aftur eins og Rúv geri ráð fyrir því að gamlingjarnir gleymi öllu jafnóðum en nú er ég einmitt að breytast úr öryrkja í ellibelg í kerfinu. Fyrr má nú rota en dauðrota.“
Sjónvarpið bar einnig á góma og þykir Aðalsteini öllu verr komið fyrir því en útvarpinu. Stefán bendir vini sínum góðfúslega á eitt og annað, m.a. á þátt sem senn hefur göngu sína á ný ... „en þá brá svo við að Aðalsteinn Öfgar stökk upp á nef sér og ruddi út úr sér þvílíkum formælingum og gífuryrðum að galdrakarlar á Ströndum bliknuðu í samanburði.“
Pistill Stefáns Þórs: Að endurtaka endurtekna þætti