Fara í efni
Mannlíf

Ólafur Þór: „ ... en starfsfólkið gerði sitt besta ... “

Sjötti pistill Ólafs Þórs Ævarssonar í röðinni Sögur úr heilbrigðiskerfinu, sem hann skrifar fyrir akureyri.net, birtist í dag. Ólafur Þór, geðlæknir til áratuga, vill með sögunum skrifa uppbyggilega gagnrýni á heilbrigðisþjónustuna.

„Ég vil nýta þá þekkingu sem ég hef eftir að hafa starfað svo lengi innan kerfisins og tjá athugasemdir sem ég heyri frá læknum og sjúklingum,“ segir Ólafur.

Í pistli dagsins fjallar Ólafur um Börk, verktaka sem byggði upp eigið fyrirtæki og var með tæplega fimmtíu manns í vinnu þegar best lét. Hann vann mikið og hafði ekki hugað að eigin heilsu.

„Börkur var alls ekki mótfallinn því að sækja sér aðstoð í heilbrigðiskerfinu en hann kom oft með athugasemdir um skipulag þjónustunnar, skildi það ekki, og þegar hann bar það saman við skipulag á byggingastað bætti hann oftast við í lokin að engin bygging hefði risið úr grunninum með þessum vinnubrögðum,“ skrifar Ólafur. „Öðrum fannst hann neikvæður og þá flýtti hann sér að bæta við fallegum orðum um hvað starfsfólkið kom vel fram og gerði sitt besta.“

Um skrif sín í pistlaröðinni segir Ólafur: „Ég vona að þetta örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum.“