Fara í efni
Mannlíf

Ekki rosalega flókið að vera karlmaður

„Það er ekkert rosalega flókið að vera karlmaður. Við þurfum vel að éta, bjór að drekka, kannski smá sex þegar þörfin kallar og… tja, þá er þetta eiginlega komið. Jú margir þurfa auðvitað að vinna mikið, metast og bæði slást og slá um sig. Karlmenn þurfa að fá að bölva, klæmast, rymja og reka við og horfa á fótbolta.“

Þannig hefst sjötti pistill Stefáns Þórs Sæmundssonar í röðinni Á spjalli með Aðalsteini Öfgar sem akureyri.net birtir í dag. Eins og dyggir lesendur pistla Stefáns gera sér grein fyrir strax er það Aðalsteinn sem mælir.

Pistill Stefáns Þórs: Einfaldir karlmenn