Einfalt, látlaust og til mikillar prýði
Arnór Bliki Hallmundsson heldur áfram að fræða og gleðja lesendur um gömul hús á Akureyri. Í dag fjallar hann um Lundargötu 9 á Oddeyri.
Lesendur fara fyrst í huganum allt aftur til febrúarmánaðar árið 1896; Arnór lýsir bænum og næsta nágrenni. Hann nefnir að Oddeyri tilheyri kaupstaðnum á Akureyri og Fjörunni. „Þangað er nýlega kominn vegslóði um brekkuna ógurlegu, já ógurlegu: því sunnan frá Oddeyrarbót og sérstaklega frá Grófargili og innúr hefur hún löngum verið snarbrött í sjó fram og illfær,“ skrifar hann. „Þá hafa þeir Due Benediktsson og Páll Briem amtmaður nýlega reist þar hús, sá fyrrnefndi neðst í Grófargili. Sá síðarnefndi reisti sitt hús sumarið áður (1895) og staðsetti það eftir vísindalegri mælingu, mitt á milli ysta húss Oddeyrar og syðsta húss Fjörunnar.“
Arnór Bliki fer víðar með lesendur í huganum en staldrar í nútímanum við Lundargötu 9; „einfalt og látlaust hús og til mikillar prýði í götumynd Lundargötu.“ Hann segir Lundargötu meðal þeirra gatna sem hafa einna hæstan meðalaldur húsa en mikið hefur kvarnast úr henni á síðustu áratugum. „Húsið er af nokkuð dæmigerðri gerð smárra timburhúsa frá því um aldamótin 1900, sem flest eru einbýli í dag en hýstu í fyrndinni 10-15 og jafnvel yfir 20 manns. Lundargata 9 er vitaskuld aldursfriðuð eins og allar byggingar, byggðar fyrir árið 1923 og í Húsakönnun 2020 fær húsið miðlungs varðveislugildi og umsögnina, að með endurbótum mætti auka varðveislugildi þess og húsið sé hluti varðveisluverðrar götumyndar.“
Pistill Arnórs Blika: Hús dagsins: Lundargata 9