Fara í efni
Mannlíf

Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hófst á Akureyri á föstudag og lýkur á miðnætti í kvöld með flugeldasýningu að loknum sparitónleikum á flötinni neðan við Samkomuhúsið.

Bæjarbúar eru hvattir til að skreyta hús og götur bæjarins í rauðum lit yfir hátíðina, „einnig er nýjung í ár þar sem við hvetjum gesti að klæða sig upp í rauðu og smella mynd af sér, en við sláum upp veglegum instagram leik undir myllumerkinu #rauttak,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

SUNNUDAGUR

Svæði Bílaklúbbs Akureyrar
11:00 - 16:00 Evrópumótið í torfæru hófst í gær og lýkur í dag, sunnudag. Alvöru tryllitæki og verður mikil sýning þegar ökumenn þessara öflugu bíla reyna við brekkurnar. „Gott er að taka með sér útilegustóla og eitthvað gott að drekka og borða með,“ segir í kynningu.

Rafhjólaleikarnir 2022
13:00 Rafhjólaleikarnir 2022 í Kjarnaskógi. „Skemmtun fyrir rafdrifna fjallahjólara að takast á við 4 af skemmtilegustu brekkum bæjarins.“ Frekari upplýsingar á https://www.akureyri.bike/rafhjolaleikarnir - ókeypis er á viðburðinn.

Kjarnaskógur
13:00 „Skógardagurinn verður haldinn á Birkivelli þar sem Húlladúlla mun koma fram og ganga á milli þátttakenda og nálgast hvern og einn þeirra á þeirra getustigi. Hún er með skemmtileg og töff húllatrix fyrir alla, bæði lengra komin og fyrir byrjendur.“

Á staðnum verður ísvagn frá Ísbúð Akureyrar, sápukúluvélar verða í gangi, tónlist mun óma um svæðið, sveppafræðsla, kveikt verður á báli og poppað popp. Í samstarfi við Amtsbókasafnið verður ratleikur í skóginum í kring um svæðið og foreldrar geta bragðað sér á ketilkaffi.

Flötin neðan við Samkomuhúsið
13:00 - 23:30 Tívolí

Ráðhústorg
13:00 - 18:00 Markaður

Glerártorg
13:30 Hæfileikakeppni unga fólksins. Ef þú er með einhverja hæfileika og ert 16 ára eða yngri þá er um að gera að skrá sig og taka þátt; söngur, dans, töfrabrögð, jójó, sirkus eða hvað sem er! Keppt verður í yngri flokk 8-12 ára og eldri flokk 13-16 ára og eru verðlaun veitt fyrir besta atriðið í hvorum flokki fyrir sig. Keppnin er í boði Kid´s Coolshop og og Arion banka.

Frábær verðlaun eru í boði frá Kids Coolshop, Eldhafi, Ísbúðinnni Turninn og Sundlaug Hrafnagils

Flötin neðan við Samkomuhúsið
21:00 Stóru Sparitónleikarnir; Kata Vignis kynnir, Jónína Björt og Ívar Helga munu stýra brekkusöngnum ásamt frábæru tónlistarfólki. Fram koma Páll Óskar, Clubdub, Birnir, Stjórnin, Eik Haralds og Ragga Rix. „Ekki láta þessa klikkuðu tónleika fram hjá þér fara!“ segir í tilkynningu.

Flugeldasýning á miðnætti

Græni Hatturinn
23:00 Stjórnin. Miðasala á www.graenihatturinn.is

Sjallinn
00:00 Páll Óskar, Birnir og Clubdub. Miðasala á www.tix.is