Mannlíf
Dýrmætt framtak til geðheilsu ungmenna
30.04.2026 kl. 08:00
Hermann Sigtryggsson, Ívar Sigmundsson og Gísli Kristinn Lórenzson á setningarathöfn Andrésar andar leikanna í síðustu viku. Mynd af Facebook síðu leikanna
„Hermann, Ívar og Gísli. Kærar þakkir fyrir áhrifaríkt og dýrmætt framtak ykkar til geðheilsu íslenskra ungmenna og fyrir að vera svo góðar fyrirmyndir.“
Þetta segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í nýjum pistli fyrir akureyri.net. Hann beinir orðum sínum til þremenninga úr fyrstu Andrésar andar nefndinni sem heiðraðir voru á setningarathöfn 50. leikanna í síðustu viku, þeirra Hermanns Sigtryggssonar, Ívars Sigmundssonar og Gísli Kristind Lórenzsonar. Með þeim í fyrstu nefndinni voru einnig Leifur Tómasson og Kristinn Steinsson.
„Viðurkenning þeirra er virkilega verðskulduð og allir skilja í dag gildi útivistar og hreyfingar. En sennilega eru áhrif á lýðheilsu, forvarnir og geðheilsuefling þessa verkefnis vanmetin,“ Ólafur Þór.
- Pistill Ólafs Þórs:
Geðheilsuefling Andrésar andar
- Meðfylgjandi eru svipmyndir Þorgeirs Baldurssonar frá Andrésar andar leikunum í síðustu viku.