Fara í efni
Mannlíf

Drinni og hættulegu hugsanirnar á vínyl

Í gær hófst söfnun fyrir vínylútgáfu plötunnar Hávær ljóð með hljómsveitinni Drinni & The Dangerous Thoughts. Platan var tekin upp víða á Norðurlandi á haustmánuðum síðasta árs og kom út á stafrænu formi í sumar. 

„Hávær ljóð er unnin af listakollektífinu og sjálfstæðu plötuútgáfunni MBS á Akureyri og sá Drinni sjálfur um hljóðblöndun. Hljómjöfnun var í höndum Þorsteins Kára Guðmundssonar en aukaleg hljóðvinnsla fyrir vínylutgáfu var í umsjón Sodasound í Frakklandi,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni.

„Platan verður pressuð á biksvartan 180 gr. vínyl sem gerir hana að afar eigulegum grip auk þess sem hvert eintak er handnúmerað.

Á heildina litið er Hávær ljóð fjölbreytt plata og gætir áhrifa hinna ýmsu tónlistarstefna. Blanda djass, blús og latin tónlistar er í ákveðnum forgrunni en einnig má heyra eiginleika pönks skjóta upp kollinum af og til.“

Hljómsveitin hvetur fólk til að leggja verkefninu lið:

„Hér er kjörið tækifæri til að styrkja sjálfstæða tónlistarútgáfu á Norðurlandi. Heita má á verkefnið á Karolinafund og fá plötuna að launum í bland við fleiri fríðindi, til dæmis VIP passa á árlega tónlistarhátíð MBS, Mannfólkið breytist í slím.“

Hávær ljóð á Spotify

Dómur um Hávær ljóð á Stacja Islandia

  • Hér er hlekkur á söfnun á Karolinafund

Drinni & The Dangerous Thoughts á samfélagsmiðlum:

facebook.com/drinnidt

instagram.com/drinnidt

MBS á samfélagsmiðlum:

facebook.com/mbsskifur

instagram.com/mbsskifur