Fara í efni
Mannlíf

Dóri DNA og Gunnar Karl bjóða til veislu

Listakokkurinn Gunnar Karl Gíslason – Michelin-maður Íslands – og listamaðurinn Dóri DNA fóru um landið og slógu upp veislum, sóttu sér hráefni í nærumhverfinu og prófuðu veitingastaði. Kvikmyndagerðarmenn voru með í för og í kvöld býðst þjóðinni að sjá fyrsta hluta afrakstursins, þegar fyrsti þáttur í röðinni Veislan verður frumsýndur á RÚV.

Gunnar Karl Gíslason (Sigurgeirssonar) er eigandi og yfirmatreiðslumaður á Dill í Reykjavík, sem fékk Michelin-stjörnu, fyrstur íslenskra veitingastaða, árið 2017. Því er sannarlega óhætt að leyfa sér að eiga von á góðu.

„Í fyrsta þættinum eru þeir staddir á Norðurlandi. Gunnar Karl tekur á móti Dóra á flugvellinum á Akureyri og þeir félagar fara á heimaslóðir Gunnars. Fyrsta stopp er Lambinn á Öngulstöðum hvar Jóhannes, frændi Gunnars, og frú hafa byggt upp ferðaþjónustu. Matthew er kokkur frá Portland Oregon eldar mat sem leggur áherslu á hráefni úr nærumhverfinu og Aurora blandar hanastél fyrir Dóra í fallegu landslagi Eyjafjarðarins. Veisla er svo haldin úti með húsráðendum og þeim hjónum,“ segir í kynningu á þættinum.

Þar segir ennfremur:

„Hauganes er þekktur fyrir saltfiskinn frá Elvar Reykjalín og þeir vinirnir fá sér fisk á Baccalo á leið sinni til Siglufjarðar.

Súkkulaði og kaffihúsið hennar Fríðu á Siglufirði næsti viðkomustaður og á Hótel Siglunesi gæða þeir sér á dýrinds lambaskanka með öllum helstu kryddum frá Marokkó.

Á Völlum í Svarfaðadal eru þau hjónin, Bjarni og Hrafnhildur búin að gera upp gömlu kirkjujörðina og rækta þar allt milli himins og jarðar. Ákveðið er að flauta til veislu fyrir nágrannana og setja upp veisluborð í gamla fjárhúsinu.“

Veisla á Öngulstöðum í Eyjafjarðarsveit.

Gunnar Karl Gíslason og Dóri DNA á Baccalá bar á Hauganesi.