Mannlíf
Diskóball Hunangs á Græna hattinum
28.02.2026 kl. 13:00
Fjör á sviðinu; Lúxusdívurnar Gunnur Arndís og Helga Margrét Clarke, Karl Örvarsson söngvari og saxafónleikarinn Jens nokkur Hansson.
„Víkkið dressið, pússið dansskóna og mætið á ball!“
Söngvarinn Karl Örvarsson og félagar hans í hljómsveitinni Hunangi stíga á svið á Græna hattinum í kvöld og Kalli bað fyrir ofangreind skilaboð til bæjarbúa. Það eru ekki óvænt tíðindi að hljómsveit komi fram á þeim græna, nokkrir viðburðir eru haldnir í hverri einustu viku á þeim frábæra stað en í kvöld dregur til tíðinda því framundan er diskóball! Og rétt að nefna að ballið byrjar kl. 21.
„Já, leiðin liggur norður í heimabæinn til að trylla dansglaða fætur,“ segir Kalli við akureyri.net. Hann upplýsir að Haukur Tryggvason vert á Græna hattinum hafi hvíslað því að þeim í fyrra að fólk spyrði gjarnan að því hvenær yrði alvöru ball á staðnum. „Það er mér því ljúft og skylt að tilkynna hér með að úr því verður nú bætt, öllu til tjaldað með Hunangi og Lúxusdívum í glimmer og sápukúlum upp um alla veggi,“ segir söngvarinn akureyrski.
Marmelaði, Sýróp og Hunang
Hljómsveitin Hunang var stofnuð á Akureyri á níunda áratugnum en hét reyndar fyrst Marmelaði. Einhver fetti fingur út í það, taldi að nafnið væri stælt og stolið, segir Kalli, „þannig að við breyttum nafninu í Sýróp. Svo vorum við eitt kvöldið að spila á Gauk á Stöng og í pásunni er barið harkalega að dyrum á bakherberginu þar sem við sátum. Ég fer til dyra og þar standa fjórir leðurklæddir, illvígir rokkarar og segjast vera hljómsveitin Sýróp. Við skyldum gjöra svo vel og breyta nafninu eða við hefðum verra af!“
Kalli segir að þegar sveitin kom aftur á svið að pásunni lokinni hafi þeir leðurklæddu staðið álengdar í salnum. „Þeir gáfu okkur illt auga þannig að við sáum þann kost vænstan að efna þegar í stað til nafnasamkeppni í salnum þar sem ætti að berja okkur ef við ekki skiptum um nafn í hvelli! Nafnið þyrfti að vera í stíl við Sýróp, eitthvað sætt og klístrað. Ýmsu var kastað fram og eftir handauppréttingar varð nafnið Hunang ofaná og rokkararnir héldu sigurreifir með Sýrópið á braut.“

Töluverðar mannabreytingar urðu fram eftir níunni „og við störfuðum svo óslitið þar til um 2015, sami mannskapur og segja má að við höfum átt okkar gullár á Kaffi Reykjavík, Players og Spot.“
Hljómsveitin endurútgaf nokkra diskósmelli en einnig frumsamið efni „og við létum sauma á okkur svaðalega glimmergalla þannig að segja má að við höfum verið eins og álfar út úr hól á þeim tíma því þá var engin sérstök diskóbylgja í gangi! En þetta virkaði því fólk skemmtir sér alveg svakalega vel dansandi diskó með okkur. Þessi lagaflóra er ódauðleg og ótal smellir sem hægt er að taka.“
Kalli segir að galsinn hafi kviknað aftur á síðasta ári. „Þá fengum til liðs við okkur aukinn mannskap; við vorum ákveðnir í að verða nánast eins og amerísku stór-diskósveitirnar Earth Wind and Fire og fleiri, með fjölmenni á sviði. Þar með ganga hinar dásamlegu Lúxusdívur til liðs við okkur, þær Gunnur Arndís og Helga Margrét Clarke sem á ættir sínar að rekja til Akureyrar, til hins mikla tónlistarfrömuðar Michaels Jóns Clarke“.
Í hljómsveitinni voru fyrir þrír Akureyringar, Jakob Jónsson og Jóhann Ingvason úr Skriðjöklum og Karl sjálfur, sem söng með Stuðkompaníinu og fleiri sveitum á sínum tíma. „Auk okkar eru svo Hafnfirðingarnir frómu Hafsteinn Valgarðsson á bassa og Jón Borgar Loftsson á trommur. Síðan bættist við hinn feykilega lipri gítarleikari Pétur Valgarður og svo hefur Jens nokkur Hansson saxafónleikari úr Sálinni hans Jóns míns lagt okkur lið. Hann telst nú orðið eiginlega til bandsins – að minnsta kosti þegar hann nennir eða hefur tíma, og þegar ég man eftir að láta hann vita!“ segir Karl Örvarsson.