Deildarmeistaratitill í húfi í blaki kvenna
Engir heimaleikir eru á dagskrá meistaraflokksliða Akureyrar í dag. Þrjú lið spila á útivelli, karla- og kvennalið KA í blaki og kvennalið Þórs í körfubolta.
Deildarmeistaratitillinn fór til Hveragerðis
Lokaleikirnir í Unbroken-deild karla í blaki eru fram undan um helgina. Þar til í gærkvöld átti KA möguleika á deildarmeistaratitlinum, en varð að treysta á að Hamar myndi tapa lokaleik sínum, sem ekki varð raunin. Hamar vann Þrótt í gær og hefur því þegar unnið deildarmeistaratitilinn. Hamar er á toppi deildarinnar með 53 stig og hefur lokið sínum leikjum. KA er í 2. sæti með 44 stig og á eftir tvo leiki, Afturelding kemur næst með 41 stig og á einnig eftir tvo leiki og þá Þróttur með 40 stig, en hefur lokið sínum leikjum.
Báðir leikirnir sem KA á eftir eru gegn botnliði HK í Digranesi þar sem liðin mætast í dag og á morgun. Keppikefli KA er þá að halda 2. sætinu úr því sem komið er.
- Unbroken-deild karla í blaki
Digranes í Kópavogi kl. 15
HK - KA - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Þessi lið hafa mæst einu sinni í vetur og vann KA örugglega, 3-0, á Akureyri í nóvember.
Deildarmeistaratitill undir í blaki kvenna
Lokaleikirnir í Unbroken-deild kvenna í blaki fara fram núna um helgina. Tvö efstu liðin, HK og KA, mætast tvívegis í Digranesi í Kópavogi, í dag og á morgun. Aðeins einu stigi munar á liðunum fyrir þessa lokaleiki, HK með 47 stig og KA með 46. HK getur því tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í dag, en KA verður að vinna báða leikina til að ná efsta sætinu og verja deildarmeistaratitilinn frá því í fyrra.
Lokastaðan í deildinni skiptir svo auðvitað einnig máli fyrir úrslitakeppnina og oddaleiksrétt í úrslitaeinvíginu. Hvort sem það verður KA eða HK sem endar á toppnum má teljast nokkuð líklegt að þessi lið sigri andstæðinga sína í undanúrslitunum og mætist í úrslitaeinvíginu, en auðvitað getur allt gerst þegar á hólminn er komið.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Digranes í Kópavogi kl. 17:15
HK - KA - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
KA og HK mættust tvisvar á Akureyri í desember og vann HK báðar viðureignirnar, 3-1 og 3-0.
Lokakafli 1. deildar kvenna fram undan
Kvennalið Þórs í körfubolta er í 2. sæti 1. deildarinnar, einum sigri á eftir Aþenu þegar bæði lið eiga fjóra leiki eftir. Fjölnir hefur unnið 12 leiki eins og Þór, en hefur tapað einum meira og situr í 3. sætinu. Í dag sækja Þórsarar lið KV heim í Vesturbæ Reykjavíkur. KV er í næstneðsta sæti deildarinnar, hefur unnið tvo leiki í vetur.
Ólíklegt er að Þórsliðið nái aftur toppsæti deildarinnar. Aþena á eftir fjóra leiki, gegn Selfossi, Snæfelli og B-liðum Njarðvíkur og Stjörnunnar. Það stefnir því í umspilsleiki hjá Þórsliðinu að lokinni deildarkeppninni.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Meistaravellir kl. 18:00
KV - Þór - Útsending: Sýn, KKÍ TV4
Áskriftarsjónvarp
Þór vann fyrri viðureignina gegn KV með 59 stiga mun á Akureyri í nóvember, 102-43.