Fara í efni
Mannlíf

Caesar-salat – eitt þekktasta salat heims

„Hvað má réttur breytast mikið áður en hann hættir að vera sá réttur sem nafnið vísar til? Og hvað gerist þegar nafn frægs réttar verður svo verðmætt að fólk fer að hengja það á nánast hvað sem er til að selja það?“ 

Þannig spyr Þráinn Lárusson í nýjum pistli í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net birtir í dag. Þar fjallar Þráinn um Caesar-salat, uppruna þess og sögu. Pistillinn er sérlega fróðlegur og skemmtilegur eins og Þráins er von og vísa.

„Því miður erum við Íslendingar oft býsna slæmir þegar kemur að því að virða sögu og matarmenningu annarra þjóða,“ segir Þráinn. „Caesar-salatið er einkar gott dæmi um þá skrumskælingu sem nú tröllríður öllu. Það er rúmlega aldargamalt og sennilega eitt þekktasta salat heims.“

Pistill dagsins: Caesar-salat – frægasta salat heims?