Fara í efni
Mannlíf

Bryndís Eva enn einu sinni Íslandsmeistari

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar varð Íslandsmeistari í holukeppni í dag - þriðja árið í röð! Mynd af vef GA.

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar varð í dag Íslandsmeistari í holukeppni þriðja árið í röð, að þessu sinni í 15-16 ára flokki. Þessi stórefnilegi kylfingur vann sama flokk í fyrra og varð meistari í 13-14 ára flokki árið 2023. Íslandsmót unglinga fór að þessu sinni fram á Hlíðafelli í Mosfellsbæ. 

Bryndís Eva sigraði Ernu Steinu Eysteinsdóttur úr Golfklúbbi Reykjavíkur 4/2 í úrslitaleiknum.

Þetta er annar meistaratitill Bryndísar Evu á rúmri viku, hún varð Íslandsmeistari í höggleik í flokki 15-16 ára á Þorláksvelli í Þorlákshöfn sunnudaginn 17. ágúst. Smellið hér til að sjá frétt um þann sigur.

Lilja Maren Jónsdóttir, sem varð Akureyrarmeistari á dögunum, endaði í 4. sæti í dag í flokki 15-16 ára eftir hörkubaráttu í leiknum um bronsið en hún tapaði 2/1 fyrir Emblu Hrönn Hallsdóttur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Björk Hannesdóttir úr GA var einnig á meðal þátttakenda í 15-16 ára stúlknaflokki og datt út í 16 manna úrslitum eftir tvær holur af bráðabana.

Í flokki 15-16 ára drengja lék Arnar Freyr Viðarsson best GA félaga en hann spilaði um bronsið og tapaði þeim leik eftir þrjár holur í bráðabana, „Arnar spilaði vel og fékk meðal annars örn á sautjándu holu. Ágúst Már [Þorvaldsson] datt út í 8 manna úrslitum eftir svekkjandi 1/0 tap og Egill Örn [Jónsson] tapaði sínum leik í 16 manna úrslitum,“ segir á vef GA í dag.

Í flokki 17-18 ára drengja var Hafsteinn Thor Guðmundsson eini GA keppandinn og tapaði hann í 16 manna úrslitum.