Fara í efni
Mannlíf

Breyting á bílastæðum og umferð við KA-svæðið

Bílastæðum hefur verið fjölgað í grennd við KA-svæðið á meðan N1 mótið í knattspyrnu stendur yfir. Það hófst í morgun og lýkur á laugardag. Á vef Akureyrarbæjar er meðfylgjandi mynd birt og eftirfarandi upplýsingar.

  • Hámarkshraði á Þingvallastræti frá gangbrautarljósum við Hrísalund og niður að Mýrarvegi verður lækkaður í 30 km/klst og umferð takmörkuð við eina akrein í hvora átt í stað tveggja eins og nú er. Heimilt verður að leggja bílum samsíða á akreinunum sem lokað verður.
  • Einstefna verður á Dalsbraut frá KA-heimilinu og til suðurs að hringtorgi við Skógarlund og akreinin á móti verður lokuð en heimilt verður að leggja bílum samsíða á henni.
  • Bent er á bílastæði við Verkmenntaskólann en þangað er aðeins um 11 mínútna gangur, og á bílastæði við Icelandair hotel og við Íþróttahöllina en þangað er aðeins um 7-9 mínútna gangur.
  • Loks eru gestir hvattir til að nýta ókeypis strætó á Akureyri eins og kostur er.

„Pollamót Þórs fer jafnframt fram um helgina en þar koma saman kempur kvenna og karla í eldri kantinum sem rifja upp gamla knattspyrnutakta. Þar stefnir í fjölmennasta mót frá upphafi og verða keppendur um 750 talsins og keppendur í kvennaliðum hafa aldrei verið fleiri,“ segir og á vef Akureyrarbæjar.