Bræðrafell – skáli FFA í Ódáðahrauni
Í tilefni 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar (FFA) í apríl birtir akureyri.net pistla annan hvern laugardag til vors, þar sem eitt og annað úr sögu félagsins er rifjað upp. Í dag er sjónum beint að Bræðrafelli, afskekktasta gönguskála FFA í sunnanverðu Ódáðahrauni.
Höfundur pistlanna er Hjalti Jóhannesson, sem er í ritnefnd Ferða, blaðs FFA og í afmælisnefnd vegna 90 ára afmælisins. Hann segir frá skálanum Bræðrafelli sem fluttur var inn í Ódáðahraun árið 1977 og öðrum með sama nafni sem tekinn var í notkun árið 2016 á sama stað. Hjalti hefur verið formaður Bræðrafellsnefndar FFA um margra ára skeið og segir þetta uppáhaldsstað sinn á fjöllum. „Þessi staður er fremur fáfarinn og einstaklega kyrrlátur.“
Pistill dagsins: Bræðrafell – Frásögn af afskekktasta gönguskála FFA í sunnanverðu Ódáðahrauni