Fara í efni
Mannlíf

Börn ganga í hús á hrekkjavöku

Skreyting við Kjarrlund 11 frá því á hrekkjavökunni í fyrra. Mynd: SNÆ

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á listann yfir opin hús á Akureyri á hrekkjavökunni á morgun, laugardag. Í fyrra skráðu meira en 100 heimili á Akureyri sig á listann og tóku á móti börnum í „grikk eða gott“. Í ár lítur út fyrir að þau verði enn fleiri.

Síðan 2022 hafa áhugasamir foreldrar um hrekkjavökuna haldið úti Facebook-hópnum Hrekkjavaka á Akureyri og tekið þar saman lista yfir þau heimili í bænum sem krakkar í hrekkjavökubúningum geta heimsótt þann 31. október. Heimili sem vilja taka á móti börnum í „grikk eða gott“ milli kl. 17 og 20 þennan dag eru hvött til þess að skrá sig á listann en lokað verður fyrir skráningar á miðnætti í kvöld.

Þá verður skautadiskó í Skautahöllinni í kvöld, föstudagskvöld með hrekkjavökuþema.  Hrollvekjandi veitingar og draugahús  verður í boði, en þessi viðburður er orðinn fastur liður hjá Skautafélagi Akureyrar


HVAÐ ER HREKKJAVAKA?
Trick or treat, segja börn í Bandaríkjunum þegar þau banka upp á hjá fólki: Grikk eða gott.
Börn klæða sig upp í búninga eins og á öskudaginn og banka upp á í heimahúsum en þurfa ekki að syngja til þess að fá nammi. Í Bandaríkjunum er hefðin sú að ef börnin fá ekki nammi þá gera þau fólki grikk, henda eggjum í húsið eða kasta klósettpappír í garðinn, svo dæmi séu tekin.