Mannlíf
Birkitréð glæsilega ekki ættað úr Vaglaskógi
04.11.2026 kl. 12:30
Helgi Þórsson segir í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar á vef Skógaræktarfélags Eyfirðinga í morgun og akureyri.net birtir hlut úr, að staka birkitréð glæsilega í Minjasafnsgarðinum sé ekki ættað frá Vöglum.
Á heimleið úr Vaglaskógi snemma í október fékk Helgi hugboð. Því hefur verið fleygt, segir hann, að umrætt tré sé ættað frá Vöglum. „Skyldi svo vera? hugsaði ég. Þá væri það búið að fella laufið. Þá lá leiðin í Trjáræktarstöðina (sem sagt Minjasafnsgarðinn) og þar við hliðið stóð stærðarinnar allaufguð björk. Með öðrum orðum: Þetta tré er ekki ættað úr Vaglaskógi og það sem meira er, líklega ekki einu sinni frá Íslandi.“
Meira hér: Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá