Bíladagar fjölsóttir að vanda – MYNDIR

Árlegum Bíladögum Bílaklúbbs Akureyrar lauk í gær með árlegri bílasýningu í Boganum. Fjöldi fólks kem til bæjarins eins og venjulega í tilefni þessarar hátíðar bílaáhugamanna, flestir án efa til þess að njóta þeirra viðburða sem í boði voru en eins og venjulega kusu einhverjir að „gleðja“ bæjarbúa með spóli og öðrum látum á ýmsum tímum sólarhrings. Illu heilli virðist erfitt eða ómögulegt að stemma stigu við slíku.
Dagskráin hófst á föstudag með keppni í sandspyrnu, daginn eftir var götuspyrna og bílalimbo, rallycross og hávaðakeppni á sunnudag og loks drift og „burnout“ í gær, mánudag. Það síðastnefnda er spólkeppni þar sem bílarnir eru fastir rammlega og síðan er spólað þar til dekkin tætast í sundur og jafnvel allar til felgurnar þola ekki meira ...
Þorgeir Baldursson var á ferðinni með myndavélina á spólkeppninni og á bílasýningunni í Boganum.