Mannlíf
Bíladagafjörið hefst á Akureyri í dag
17.06.2026 kl. 06:00
Frá „burnout“ keppni á Bíladögum síðasta árs. Um er að ræða spólkeppni þar sem bílarnir eru festir rammlega og síðan er spólað þar til dekkin tætast í sundur og jafnvel allt þar til felgurnar þola ekki meira ... Mynd: Þorgeir Baldursson
Að venju stendur Bílaklúbbur Akureyrar fyrir árlegum Bíladögum á Akureyri þessa dagana og eru ýmsir viðburðir á dagskrá fram til laugardagskvölds. Dagskráin hefst í dag með veglegri bílasýningu í Boganum en að öðru leyti verður dagskráin að mestu leyti á svæði bílaklúbbsins á Glerárdal og þar mun klúbburinn einnig reka tjaldsvæði.
Helstu dagskrárliðir:
- 17. júní
Bílasýning í Boganum kl. 10-18
Audio og AF bílagræjur við Bogann kl. 14-16
Auto-x kl. 20:00–22:00 - 18. júní
Driftkeppni kl. 10-17
Vegasalt kl. 20 og bílalimbó kl. 21 - 19. júní
Sandspyrna kl. 11:00-15:45
Hávaðakeppni kl. 21 - 20. júní
Götuspyrna kl. 12:30-19:00
„Burnout“ kl. 20:30
Sjá nánari dagskrá og upplýsingar um miðasölu á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar og á FB-síðu klúbbsins.

Bílasýning í Boganum í fyrra. Hún verður þar í dag eins og hefð er fyrir á þjóðhátíðardaginn. Mynd: Þorgeir Baldursson