Fara í efni
Mannlíf

Besta deildin: Þór/KA sækir meistara Vals heim

Besta deild kvenna í knattspyrnu hefst í dag. Stelpurnar okkar í Þór/KA ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því þær sækja Val heim að Hlíðarenda. Valsliðið er Íslandsmeistari síðustu þriggja ára og allir spámenn gera ráð fyrir að Valsmenn verði meistarar enn einn ganginn.

Liði Þórs/KA er víðast hvar spáð þriðja sæti og spennandi verður að sjá hvernig að kemur undan vetri í þessum fyrsta leik Íslandsmótsins.

Flautað verður til leiks að Hlíðarenda kl. 15.00 og verður viðureignin sýnd beint á Stöð 2 Sport.