Fara í efni
Mannlíf

Berglind Ósk: „Gætum hagsmuna bæjarbúa“

Bæjarfulltrúar meirihlutans í bæjarstjórn Akureyrar eftir að skrifað var undir málefnasafning í dag. Frá vinstri: Gunnar Már Gunnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir, fulltrúar Framsóknar, þá Sjálfstæðismennirnir Heimir Örn Árnason og Berglind Ósk Guðmundsdóttir og þá L-listafólkið Óðinn Svan Óðinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins, kemur ný inn í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningarnar og í meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og L-listans kemur fram að hún taki við embætti bæjarstjóra og gegni því á kjörtímabilinu. Í samtali við blaðamann segir hún ákveðin tækifæri fólgin í því að bæjarstjórinn sé pólitískt ráðinn.

En var það ófrávíkjanleg krafa frá Sjálfstæðisflokknum að fá bæjarstjórastólinn?

„Nei, þetta var ekki krafa, þetta var bara tækifæri sem við í meirihlutanum sáum til að beita bæjarstjórastólnum til að skýra pólitíska forystu og pólitíska ábyrgð þannig að við sjáum bara tækifæri í því að breyta aðeins þessu fyrirkomulagi og stígum inn í þetta bara mjög samstiga,“ svarar Berglind Ósk. Hún er spurð að því hvort flokkurinn hafi þurft að gefa mikið eftir á móti. „Í meirihlutaviðræðum er það alltaf þannig að það er verið að gefa eftir og taka eitthvað til sín og það er bara eðlilegt í öllu meirihlutasamstarfi að þú þarft eitthvað að semja,“ segir Berglind Ósk. „En við vorum bara öll mjög sátt og þykir þessi skipting bara mjög sanngjörn og erum spennt fyrir samstarfinu,“ bætir hún við.

Þannig að það hafa ekki verið margir átakafletir í þessum viðræðum?

„Nei, ég held að það sé bara augljóst miðað við hvað þetta gengur hratt og vel, það er kominn fimmtudagur og kosningarnar voru bara fyrir fjórum dögum og þetta er orðið klárt. Þetta hefur gengið vel og mikill samhljómur í hópnum,“ svarar Berglind Ósk.

Hvað er það fyrsta sem bæjarbúar munu sjá nýtt eða öðruvísi frá ykkur?

„Það væri þá þessi skýra hagsmunagæsla, hin sterka rödd bæjarstjórnar útávið, ekki bara fyrir Akureyrarbæ heldur fyrir Norðurland í heild sinni. Við ætlum okkur að stíga fast til jarðar í því að gæta hagsmuna bæjarbúa gagnvart ríkisvaldinu og fá til okkar þann skerf sem okkur finnst réttlátur,“ segir Berglind Ósk og leggur áherslu á orðin.

Blaðamaður grípur á lofti orð hennar um að ekki eigi einungis að gæta hagsmuna Akureyrar, heldur Norðurlands í heild, og spyr hvort sameining einhverra sveitarfélaga gæti mögulega verið í pípunum?

„Við ætlum að leita eftir samtali og samstarfi um að efla allt þetta þjónustusvæði og ef það kemur síðan upp í því samtali einhverjar mögulegar sameiningar, þá erum við alltaf til viðtals um það,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir að lokum.