Fara í efni
Mannlíf

Aurskriða í Ólafsfirði kom Ellu og Simma saman

Sigmundur Ernir Rúnarsson og Elín Sveinsdóttir.

Rithöfundurinn og sjónvarpsmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur sent frá sér bókina Í stríði og friði fréttamennskunnar sem er opinskátt uppgjör hans við langa og viðburðaríka fjölmiðlatíð, en óhætt er að segja að hann hafi sett sterkan svip á íslenskt þjóðlíf frá því hann hóf blaðamennsku og byrjaði að senda frá sér ljóð og sögur um og upp úr 1980.

Bókin hefur þegar fengið afar góð viðbrögð, en á mannlif.is segir, svo dæmi sé tekið, að höfundurinn hafi sent frá sér „öldungis frábæra bók“ og hún sé „einstaklega vel skrifuð, bráðfyndin og upplýsandi.“

Lesendur hafa haft á orði að hér sé komin „sagnaveisla“ jólabókavertíðarinnar og ein af mörgum þeirra tengist fæðingarstað skáldsins – Akureyri – og segir frá heldur óvenjulegu upphafi á farsælu hjónabandi Simma og Ellu, konunnar hans til yfir 35 ára, en Elín Sveinsdóttir var í upphafi sminka á Stöð 2, sú fyrsta af Íslandi sem nam förðunarfræði úti í löndum, nánar til tekið í París.

Akureyri.net fékk leyfi höfundar til að birta þennan kafla bókarinnar:

„Stöð 2 varð ekki bara vinnustaður frá fyrsta starfsdegi. Hún varð manns annað heimili. Eða öllu heldur félagsheimili.

Sumir sögðu ástarfley.

Það má vel heita svo.

Og fyrir utan það augljósa, að enginn vissi um tíma hvort sjónvarpsstjórinn Jón Óttar Ragnarsson var í tygjum við leikkonuna Elvu Gísladóttur sem var að byrja með barnaefni á Stöðinni, ellegar innanhússarkitektinn Valgerði Matthíasdóttur sem var farin að hanna glæsilegar og litríkar leikmyndir og annað útlit uppi á Krókhálsinum, þá lá það alltaf í loftinu að ástarsambönd væru að verða til á hvaða deildum sem var í þessu afskekkta iðnaðarhúsnæði á ystu mörkum borgarinnar.

Spurningin var bara hver var með hverjum.

Og víst er það svo að Stöð 2 hefur fjöldamörg hjónabönd á samviskunni. Það gat líklega aldrei orðið öðruvísi en svo. Svo þétt og náin var samvinnan. Þvílík og önnur eins var gleðin og glettnin í ásjónu starfsfólksins á hverjum einasta degi.

Bara á fréttastofunni tók Páll Magnússon saman við skriftuna Hildi Hilmarsdóttur, Þórir Guðmundsson við fréttaritarann Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur og Sigmundur Ernir Rúnarsson við förðunarfræðinginn og síðar framleiðslustjórann Elínu Sveinsdóttur.

Og þau hjónabönd hafa haldið síðan.

En það er auðvitað til marks um merkilegar tilviljanirnar í lífinu að aurskriða í Ólafsfirði kom okkur Ellu saman.

Ég hafði í fjölda skipta þegið smink úr hennar mildu höndum. En af því að það var alltaf einhver telpa að snuðrast í kringum hana í sminkherberginu, líklega um tíu ára aldur, tók ég það bara sem gefið mál að þar væri komin dóttir hennar og Ella væri þar af leiðandi gift og gefin öðrum manni.

En svo var ég sendur norður í land einn síðsumardaginn. Það hafði fallið stóreflis aurskriða á byggðina í Ólafsfirði ofan úr Tindaöxl og eyðileggingin var víða mikil, á húsum bæði og bílum, þótt blessunarlega yrðu ekki slys á fólki.

Fréttaöflunin gekk vel á vettvangi – og svo var farið í loftköstum inn á Akureyri til að klippa saman efnið í húsakynnum Samvers niðri á Oddeyrinni þar sem félagar mínir og vinir voru fyrir á fleti, þeir Bjarni Hafþór Helgason, Sigurður Hlöðversson og Þórarinn Ágústsson hjá Eyfirska sjónvarpsfélaginu sem síðar urðu samstarfsaðilar Stöðvar 2 á Norðurlandi.

Syðra voru uppi hugmyndir að ég kynnti sjálfur inn fréttina úr Sjallanum á Akureyri í beinni útsendingu. Svo vel vildi nefnilega til að Stöðin var á staðnum og var að fara að senda beint út einn af fjöldamörgum skemmtiþáttum sínum, Í sumarskapi, með þeim Sögu Jónsdóttur og Jörundi Guðmundssyni.

Ég var sendur í snatri upp á efri hæðirnar í smink. Og þar er þá komin Ella Sveins með púðurburstann á lofti. Ég man að þegar ég hallaði mér aftur í sminkstólnum og horfði á þessa dökkhærðu gyðju bogra yfir mér, hugsaði ég með mér að hér væri kominn lífsförunautur minn.

Það væri á tæru.

Enda reyndist hún vera á lausu eftir allt saman. Hnátan sem var að skottast í kringum hana á Krókhálsi var þá bara litla systir hennar.

Ég vissi raunar ekki þá, nýsminkaður fréttamaðurinn á sögufrægasta skemmtistað í heimabæ mínum, að ég ætti eftir að vinna svo náið með þessari konu eftir að hún varð útsendingar- og framleiðslustjóri á fréttastofu Stöðvar 2 til næstu tuttugu ára eða svo, að börnin okkar öll sem uxu síðar úr grasi, gerðu varla greinarmun á vinnustað og heimili, enda ólust þau meira og minna upp á fréttastofunni og í myndverinu.

Og þeim sást raunar iðulega bregða fyrir í miðjum fréttatímanum þegar þau höfðu laumað sér inn í átt að ljósum skrýddu fréttasettinu og tilkynntu pabba sínum í eigin sakleysi að þau þyrftu að pissa.“

Bókin er til sölu í verslunum Pennans Eymundssonar.