Fara í efni
Mannlíf

Árlegur jólamarkaður Skógarlundar í vikunni

Árlegur jólamarkaður Skógarlundar verður haldinn laugardaginn 4. desember kl. 11 til 15 í Skógarlundi. Auk þess verður markaður á Glerártorgi á fimmtudag og föstudag (2. og 3. desember) frá klukkan 13.00 til 15:30.

„Til sýnis og sölu eru fjölbreyttar vörur og listaverk sem notendur Skógarlundar hafa unnið að. Sem dæmi má nefna muni úr leir, gleri og tré eins og kertastjaka, blómapotta, jólatré, merkimiða, baðbombur og margt fleira,“ segir í tilkynningu, tekið fram að öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og að tilvalið sé að kaupa listmuni í jólapakka.

„Hvað er Skógarlundur - miðstöð virkni og hæfingar? Í Skógarlundi er fólki með stuðningsþarfir boðin fjölbreytt þjónusta á níu starfsstöðvum: Skapandi skrif, vinnuþjálfun, gagnaeyðing, hreyfing, smíðar og handverk, tölvur og rofar, skynörvun, reynsluboltar og tjáskipti. Markmið Skógarlundar eru meðal annars að efla alhliða þroska og sjálfstæði, auka og viðhalda færni til að takast á við athafnir daglegs lífs og bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til hæfingar og virkni fyrir alla.“