Fara í efni
Mannlíf

Ánægja þegar lífgað er upp á skammdegið

Akureyrarbær færist æ meira í jólabúninginn, bæði við heimahús og annars staðar. Á heimasíðu bæjarins segir að áhersla hafi verið lögð á að skreyta Akureyri vel að undanförnu og lýsa upp svartasta skammdegið. „Starfsfólk Akureyrarbæjar byrjaði fyrr en venjulega að tendra jólaljósin, auk þess sem ákveðið var að bæta við nýjum jólaskreytingum á almennum svæðum. Var þetta einkum gert til að bregðast við óvenjulegum aðstæðum í samfélaginu og lágstemmdari aðventu en flestir hafa vanist af völdum heimsfaraldursins,“ segir á heimasíðunni.

Af nýjum jólaskreytingum má til dæmis nefna vafninga með seríum á milli ljósastaura við Gránufélagsgötu og á Ráðhústorgi, seríur í trjám í göngugötunni og kastara sem lýsa upp tré ofan við Listagilið, Skátagilið og andapollinn. Auk þess hafa verið settar seríur í tré við Laxdalshús. „Að venju fer mest fyrir jólaskreytingum í miðbænum og þar í kring, en þó er einnig búið að færa Kjarnaskóg í jólaklæðin með skreyttum trjám og seríum,“ segir á síðunni.

Þrír vagnar úr flota Strætisvagna Akureyrar hafa einnig verið skreyttir að innan með jólaseríu og greni. „Við höfum fengið töluverð viðbrögð frá farþegum. Fólki finnst þetta flott og er ánægt með að lífgað sé upp á skammdegið," er haft eftir Engilbert Ingvarssyni, verkstjóra hjá Umhverfismiðstöð. Meðfylgjandi myndir voru birtar á heimasíðu bæjarins.