Alþjóðaforseti Lions heimsótti Akureyri
Bandaríkjamaðurinn Mark S. Lyon, alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, sótti Akureyri heim á dögunum ásamt eiginkonu sinni Lyn Lyon. Þau stöldruðu við á Íslandi á leið sinni frá París vestur um haf, og vörðu nær öllum tímanum á Akureyri; dvöldu þar í tvo daga. Þetta er í fyrsta sinn sem erlendur alþjóðaforseti Lions International heimsækir Akureyri.
Forsetinn kom víða við á Akureyri; heimsótti stofnanir og félög sem Lions hefur styrkt og hitti einnig að máli fulltrúa Akureyrarbæjar, SinfoniaNord og Tónlistarskólans á Akureyri og þakkaði fyrir veittan stuðning við Orkester Norden sem var haldið á Akureyri í sumar.
- Mark og Lyn litu við á boccia æfingu hjá íþróttafélaginu Akri í íþróttahúsi Glerárskóla og akureyri.net rak inn nefið þar eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Lionsklúbburinn Hængur hefur í áratugi haldið árlegt Hængsmót í íþróttum fyrir fatlaða, þar sem meðal annars er keppt í boccia.

Stefán Thorarensen bíður spenntur eftir heimsókn Lions hópsins á boccia æfinguna í íþróttahúsi Glerárskóla.

Hjónin Lyn og Mark Lyon, og Lions-feðgarnir Árni V. Friðriksson og Jón Heiðar Árnason.

Sigríður Jósepsdóttir yfirþjálfari bocciahóps Akurs hvetur alþjóðaforsetann, Marc Lyon, til að spreyta sig í boccia. Á milli þeirra er Halldór Kristjánsson fyrrverandi alþjóðastjórnarmaður Lions.

Sigrún Björk Friðriksdóttir lengst til vinstri, Oddur Andri Hrafnsson í miðjunni og Unnur Marta Svansdóttir hægra megin.

Frá vinstri: Arnfríður Stefánsdóttir, Rósa Ösp Traustadóttir og Eiður Guðni Matthíasson.

Svava Vilhjálmsdóttir kastar, lengst til vinstri er Jón Heiðar Árnason, en norðan við Svövu (eins og Akureyringar kunnugir staðháttum myndu orða það!) eru Marc Lyon og Halldór Kristjánsson.


Keppni Svövu Vilhjálmsdóttur og alþjóðaforsetans skjalfest með nútímatækni. Frá vinstri: Árni V. Friðriksson, Lyn Lyon, Guðrún Björt Ingvadóttir fyrrverandi alþjóðaforseti og Jón Bjarni Þorsteinsson fyrrverandi alþjóðastjórnarmaður.

Svava Vilhjálmsdóttir og alþjóðaforsetinn, Mark Lyon, að einvíginu loknu. Mark kvaðst alsæll með að hafa lent í öðru sæti í fyrstu keppni sinni í boccia; gott væri að komast á verðlaunapall!

Ingi Bjarnar Guðmundsson þakkar alþjóðaforsetanum fyrir heimsóknina. Ingi Bjarnar er stjórnarmaður í Akri, þjálfari bocciahópsins og Lionsfélagi.

Svava Vilhjálmsdóttir og Karen Alda Ottesen.

Védís Elva Þorsteinsdóttir og Stefán Thorsrensen.