Allt snitsel í raspi er ekki vínarsnitsel
„Á Íslandi hefur því miður lengi verið tilhneiging til að kalla allt snitsel í raspi vínarsnitsel, jafnvel meðal fagmanna í matreiðslu,“ segir Þráinn Lárusson í vikulegum pistli fyrir akureyri.net í röðinni MATARÞRÁ-INN og bætir við: „En það er álíka ónákvæmt og að kalla alla ávexti epli. Vínarsnitsel er alltaf gert úr kálfakjöti og það á sér langa sögu. Snitselheitið eitt og sér nær hins vegar yfir miklu stærri fjölskyldu rétta úr ýmiss konar hráefnum og í margvíslegum útfærslum.“
Þráinn eys enn einu sinni úr viskubrunni sínum fyrir lesendur í skemmtilegum, mjög fjölbreyttum og fróðlegum pistli um snitsel og Vínarsnitsel.
Hann kveðst stundum reka augun í vínarsnitsel á matseðli „sem reyndist svo vera grísasnitsel með fölsuð skilríki,“ eins og hann orðar það. „Því þótt fátt virðist einfaldara en kjötsneið sem velt er upp úr hveiti, eggjum og brauðraspi og síðan steikt í feiti, leynist kannski á bak við hana merkileg saga um matarmenningu, þjóðarstolt og upprunadeilur um það hver eigi hvað.“
Pistill Þráins: Vínarsnitsel, en ekki hleypa svíninu inn