Mannlíf
Allir syngjandi glaðir á öskudaginn
18.02.2026 kl. 14:00
Mynd: Þorgeir Baldursson
Öskudagurinn rann upp að vanda að loknum sprengidegi sem hafði leyst bolludag að hólmi. Allt hefðbundið í þessari miklu hátíðarviku, í höfuðstað Norðurlands, veðrið lék meira að segja við hvern sinn fingur í morgun; nokkurra stiga frost en bjart og fallegt, börn skutust á milli fyrirtækja, sungu og þáðu víðast hvar gotterí að launum.
Boðið var upp á skemmtiatriði í verslunarmiðstöðinni á Glerártorgi og þar var „kötturinn“ síðan sleginn úr tunnunni. Þorgeir Baldursson var á ferð um bæinn í morgun með með myndavélina.
Meira seinna í dag
