Allir oddvitarnir á Akureyri hafa kosið
Oddvitar allra framboða í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri hafa nú greitt atkvæði. Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins reið á vaðið og kaus laust fyrir klukkan hálf tíu, Þórhallur Jónsson stofnandi og oddviti Akureyrarlistans mætti á kjörstað nokkrum mínútum síðar. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir oddviti Viðreisnar kaus síðust oddvitanna skömm fyrir klukkan eitt.

9:26 – BERGLIND ÓSK GUÐMUNDSDÓTTIR SJÁLFSTÆÐISFLOKKI

9:29 – ÞÓRHALLUR JÓNSSON AKUREYRARLISTA
og eiginkona hans, Inga Vestmann.

9:56 – HLYNUR JÓHANNSSON MIÐFLOKKI

10:09 – SINDRI S. KRISTJÁNSSON SAMFYLKINGU

10:27 – ÓÐINN SVAN ÓÐINSSON L-LISTA

11:18 – SUNNA HLÍN JÓHANNESDÓTTIR FRAMSÓKN

12:11 – JANA SALÓME INGIBJARGAR JÓSEPSDÓTTIR VG

12:54 – LOVÍSA OKTOVÍA EYVINDSDÓTTIR VIÐREISN