Akureyrarvöllur var nafli bæjarins á sumrin

„Akureyrarvöllur. Nafli bæjarins á sumrin. Þannig var það alltént þegar ég var að vaxa úr grasi.“
Þannig hefst Orrablót dagsins, pistill Orra Páls Ormarssonar, þess snjalla blaðamanns á Morgunblaðinu. Pistlar hans fyrir Akureyri.net birtast annan hvern föstudag.
Í dag býður Orri Páll upp á einskonar óð til Akureyrarvallar. Hann rifjar upp ýmsa eftirminnilega leiki; þegar Halldór Áskelsson gerði fimm mörk í deildarleik gegn FH, heimsóknir Manchester City og Manchester United, og fleira ber á góma.
Þórsarinn Orri Páll á það til að skjóta í léttum dúr á KA-menn, en segir meðal annars í dag: „Rígurinn milli Þórs og KA er með því skemmtilegasta og fallegasta sem gerist í mannlegu samfélagi. Hann má aldrei deyja.“
Orrablót dagsins: Nú til að sjá KA-mennina ganga af velli