Fara í efni
Mannlíf

Akureyrarmessan í Reykjavík – MYNDIR

Hermann Arason kom að norðan og lék og söng eigin tónlist. Níels Ragnarsson er við píanóið. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Akureyrarmessa var í Bústaðakirkju í Reykjavík um síðustu helgi, eins og Akureyri.net hefur áður greint frá. Myndasyrpu frá viðburðinum er nú að finna hér á vefnum.

Messan hefur verið árlegur viðburður í rúman áratug nema hvað hún féll niður í fyrra vegna Covid-faraldursins. Prestar voru sr. Eva Björk Valdimarsdóttir og sr. Pálmi Matthíasson en hugmyndina átti einmitt á sínum tíma Akureyringurinn Pálmi, sem lengi var sóknarprestur í Bústaðakirkju.

Fyrir athöfn afhenti Davíð Jóhannsson, einn þeirra sem hafa veg og vanda að undirbúningnum, öllum sérprentaða messuskrá sem útbúin er árlega og hana prýðir jafnan listaverk eftir Kristin G. Jóhannsson, bróður Davíðs.

Tónlist fluttu Hermann Arason, sem lék á gítar og söng eigin lög, Matthías Stefánsson lék á fiðlu og gítar, Níels Ragnarsson lék á orgel og píanó, Marteinn Snævarr Sigurðsson söng, Grímur Sigurðsson lék á bassa og Magnús Ingólfsson á gítar. Ásthildur Hlín Valtýsdóttir flutti hugvekju dagsins.

Eftir messu var samverustund í safnaðarheimili kirkjunnar þar sem boðið var upp á veitingar. Langflestir messugestir voru Akureyringar búsettir á borgarhorninu en einnig nokkrir sem eða aftur eru búsettir í höfuðstað Norðurlands. Meðal þeirra var Skapti Hallgrímsson, ritstjóri Akureyri.net, og að sjálfsögðu var myndavélin með í för!