Mannlíf
Akureyrarglugginn og pylsa með öllu
11.08.2026 kl. 15:30
Guli Akureyrarglugginn alltaf vinsæll til myndatöku. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Veðrið hefur leikið við Akureyringa í dag og í gær, dágóður fjöldi ferðamanna á vappi um miðbæinn í morgun, væntanlega flestir farþegar skemmtiferðaskipa sem liggja við bryggju enda stöðugur straumur gangandi vegfarenda til og frá Oddeyrarbryggju.
Guli Akureyrarglugginn að sjálfsögðu vinsæll til myndatöku, ekki lengur alveg upp við skrifstofuglugga þar sem fyrirgangur ferðamanna ku hafa truflað einbeitingu starfsfólks. Biðröð eftir að ná sér í íslenskar pylsur með öllu, varað við ágangi fugla og bara gott mannlíf í góðu veðri.
Nokkrar myndir úr miðbænum í morgun.