AFTUR Á BAK – Saga Kóka í Cesar komin út
„Það er sennilega leitun að manni sem hefur átt jafn ævintýralegt lífshlaup og Herbert Ólason, betur þekktur sem Kóki. Margir þekkja hann helst úr hestamennskunni en það er bara hluti af stórmerkilegri ævi.“
Svo segir í kynningu bókar sem er nýkomin út hjá Sögum útgáfu. Höfundur er Logi Bergmann Eiðsson, sem „skrifar persónulega, einlæga og oft bráðfyndna ævisaga manns sem hefur lifað lífinu af fullum krafti og skilið eftir sig spor hvar sem hann hefur komið,“ eins og segir í kynningunni.
- Akureyri.net birtir hér að neðan tvo kafla úr bókinni
Akureyringar sem komnir eru til vits og ára muna án efa eftir Kóka, þeim kunna athafnamanni í bænum á árum áður. „Löngu áður en íslenskir hestar fóru að streyma til Þýskalands var Kóki orðinn goðsögn á Akureyri. Forstjóri, tískukóngur, frumkvöðull og maður sem hafði einstakt lag á að vera á undan samtímanum. Hann sá tækifæri þar sem aðrir sáu hindranir og lét sjaldan hefðir eða venjur standa í vegi fyrir sér,“ segir í kynningu.

„Síðar lá leiðin til Þýskalands þar sem hann ruddi brautina fyrir útflutning íslenskra hesta, opnaði nýjar dyr fyrir íslenska hestamennsku og stofnaði TOP REITER. Þetta eru þó nokkrir kaflar í lífi sem hefur verið fullt af ævintýrum, óvæntum uppákomum, sigrum, áföllum, ótrúlegum tilviljunum og óskiljanlegu ástarlífi.
Þetta er saga manns sem hefur ferðast víða, kynnst fólki úr öllum áttum og lent í aðstæðum sem fæstir myndu trúa ef þær væru ekki sannar. Í gegnum allt hefur hann haldið í einstaka lífsgleði, óbilandi bjartsýni og þá trú að jafnvel erfiðustu hindranir geti reynst upphafið að einhverju betra.“
Kaflarnir tveir sem akureyri.net birtir úr bók Loga eru annars vegar Fótbolti og spámennska og hins vegar Kóki Cesar.
FÓTBOLTI OG SPÁMENNSKA
Það var gott að koma til Akureyrar. Þar var vel tekið á móti mér. Vinir Kollu tóku mér mjög vel og ég var á skíðunum með þeim og kynntist öllum strax. Þetta var góð klíka, Kennedybræður og Þórarinn Jónsson, Doddi, mikill vinur minn og Hulda konan hans.
Þegar við vorum búnir í fótboltanum stofnuðum við félag og í því voru menn sem voru hættir í fótboltanum. Samt ekki gamlir, þrjátíu til þrjátíu og fimm ára, en það þótti gamalt þá. Kári Árna, Skúli og fleiri. Þarna voru gamlir landsliðsmenn sem voru enn frábærir fótboltamenn. En mestu skipti að þetta var frábær félagsskapur. Þetta var mjög skemmtilegt og við fórum út um allt. Allt frá Þórshöfn til Hólmavíkur. Þangað flugum við með Norðurflugi og vorum miklir kóngar þegar við mættum og okkur var boðið til veislu um kvöldið.

Ég elskaði að fara á skíði, þótt ég hefði ekki mikinn tíma fyrir slíkt. Hér er ég í Hlíðarfjalli með ungum skípaköppum sem áttu síðar eftir að gera garðinn frægan.
En liðið hét ekkert. Svo vorum við að spila við Árroðann og okkur vantaði nafn. Ég var fyrirliði og tilkynnti að liðið héti Early Sunrise United. Þetta var frægt lið.
– Þess má geta að fjallað var um þennan hóp í frétt árið 1977:
Á þriggja ára ferli sínum hefur Early Sunrise United aðeins tapað einum leik, enda æfa kapparnir mikið og gefa ekkert eftir þegar daginn fer að stytta á haustin. Þá byrja inniæfingarnar og æfa þeir sex sinnum í viku yfir vetrartímann.
Margir þekktir knattspyrnumenn voru í hópnum. Þeirra á meðal Einar Helgason, Skúli og Vilhelm Ágústssynir, Sigurður Jakobsson, Eyjólfur Ágústsson, Kári Árnason, Kristján Grand, Reynir Brynjólfsson, Jón Stefánsson, Valsteinn Jónsson og Magnús Jónatansson. Þessi hópur var mjög samheldinn og við mættum allir í sund á morgnana. Komum klukkan sjö og syntum og héldum hópinn. Svo spiluðum við innanhússfótbolta á veturna í gamla íþróttahúsinu á Eyrinni. Það var nú eiginlega bara skemma sem breytt var í íþróttahús og var lengi vel eina íþróttahúsið í bænum.

Nokkrir félagar úr boltanum: Þormóður Einarsson, Skúli Ágústsson, ég og Kári Árnason.
Þar var ég tæklaður einu sinni og liðböndin slitnuðu. Þannig að ég þurfti að fara á spítala í aðgerð. Gauti, sem var aðallæknirinn á spítalanum, skar mig. Ég bað hann að setja mig ekki í gifs og lofaði því að fara varlega. Ég gæti bara ekki verið í gifsi. Svo nokkrum vikum eftir útskrift af spítalanum kom snjórinn og það var dásamlegt færi í fjallinu. Ég fór á skíði. Reyndar bara eitt skíði og renndi mér niður og fram hjá Gauta. Hann var ekki glaður.
Ári seinna meiddi ég mig illa í ökklanum og aftur tekur hann við mér. Og aftur eigum við sömu samræðurnar fyrir aðgerðina: Ekki setja mig í gifs. Ég lofa að fara varlega. Ég þoli ekki að vera í gifsi. Hann samþykkti það. Svo eftir aðgerðina kemur hann inn á stofuganginn, lítur á mig og segir: „Það verður að gifsa þennan. Það er ekki hægt að treysta honum.“ Þannig að ég var gifsaður langt upp eftir fætinum og þurfti að vera þarna í viku, án þess að geta hreyft mig.
Ég er ekki alveg týpan til að liggja bara á spítala, svo mér leiddist og fór þá að fíflast í öllum í kringum mig. Á stofu með mér var eldri maður sem hafði aldrei misst dag úr vinnu en var eitthvað slappur og hafði verið lagður inn. Á hverjum degi komu hjúkrunarfræðingarnir með töflur handa honum. Svo segi ég við hann einn daginn: Þessar töflur sem þær koma með. Þær eru bara til að flýta fyrir. „Já! Ég vissi það,“ hrópaði hann. Svo næst þegar þær komu um morguninn beið hann með hendurnar undir sænginni. Þegar þær komu með bakkann sló hann þeim upp og bakkinn fór upp í loft og allt út um allt. „Já, ekkert svona! Þið eruð bara að reyna að drepa mig!“
Ég kannaðist við eina hjúkrunarkonuna og fór að spyrja um allar hjúkkurnar á deildinni og laumaðist til að skrifa þetta hjá mér. Svo komu þær að laga til hjá mér og ég gríp í höndina á einni og segi: „Þú hefur merkilega lófa. Á ég ekki að spá fyrir þér?“ Svo spurði ég hana hvernig nýi bíllinn væri, af því ég vissi að hún hefði komið á nýjum bíl um morguninn. Hún varð rosalega hissa. Og þegar maður veit allt um fortíðina er ekkert mál að bulla um framtíðina. Hún trúði mér algjörlega.
Þá komu þær bara allar og vildu láta spá fyrir sér. Þannig að ég setti miða á dyrnar: Sámur spámaður. Pantaðu tíma í tíma. Og ég var aðalkarlinn þarna. Fékk steikur af Bautanum í matinn og spáði fyrir þeim öllum. Svo kom einhver ný, sem hafði verið í fríi. Ég vissi ekkert um hana þannig að ég sagði henni að koma bara um kvöldið. Ég væri svo þreyttur eftir alla spádómana.
Ég náði í vinkonu mína og hún sagði mér að þessi hjúkka væri að vestan og fjölskyldan hefði átt þvottahús og hún væri nýbúin að komast að því að hún væri ólétt. Svo þegar líða fór að þessu setti ég sængina yfir hausinn á mér og rembdist þannig að ég varð alveg kófsveittur. Hún spurði hvort það væri eitthvað að og ég sagðist vera kominn í trans. Tek svo í höndina á henni og segi alvarlega: „Við erum ekki tvö ein hér!“ Henni dauðbrá því það vissi þetta enginn. Svo sagði ég við hana: „Það er allt mjög blautt í kringum þig í æsku. Það er eins og pabbi þinn hafi verið á sjónum. Eða átt þvottahús!“ Og svipurinn á henni. Maður minn!
Svo var ég bara útskrifaður en átti að koma aftur eftir þrjár vikur. Þá óð ég þarna inn á hækjunum og heilsaði öllum en það heilsaði mér enginn! Svo kemur ein til mín og segir með þjósti: „Þú ert nú meira ógeðið!“ Þá hafði vinkona mín kjaftað. Það lá við að ég þyrfti að taka saumana úr sjálfur!
KÓKI Í CESAR
– Akureyringar af tiltekinni kynslóð þekkja Kóka fyrst og fremst sem Kóka í Cesar. Það er ekki laust við að sumir fái blik í augun þegar þeir rifja upp tímann þegar Cesar var aðalbúðin í bænum.
Sagan af Cesar er samt miklu lengri en flestir halda, og hún byrjar alls ekki á Akureyri heldur í Melaskóla. Þar var Anna Heiðdal í skóla með mér. Hún var kærasta Guðlaugs Bergmanns, Gulla, og síðar eiginkona hans til margra ára. Þannig kynntist ég Gulla, manni sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á líf mitt. Við vorum mikið saman á Storknum 1960-61. Hann var þar sem Glaumbar kom síðar. Þangað komu unglingar til að dansa og þar var ball á hverju kvöldi. Óli Laufdal rak þennan stað og þarna var opið alla daga vikunnar nema miðvikudaga.
Helsti dansarinn í Storknum var Sæmi Rokk, en Gulli Bergmann var líka mjög liðtækur dansari. Óskar og Erla, vinir okkar, voru líka í þessari klíku. Það var ekkert vesen á okkur og engin drykkja. Við vorum bara að dansa og skemmta okkur. Við Gulli urðum góðir vinir, þótt hann væri aðeins eldri en ég, og við komumst að því að við vorum svipað þenkjandi. Kannski er það ástæðan fyrir því að það kom mér ekki á óvart síðar að við yrðum viðskiptafélagar.
Svo skildi leiðir okkar um tíma. Ég fór til Akureyrar 1963 og var þar bara að sinna mínu lífi, reyna að koma undir mig fótunum og vann eins og skepna. Það var ekki mikið samband á milli okkar á þeim árum.
Eitt af því sem ég gerði var að vinna sem þjónn í Sjallanum á kvöldin. Það gerði ég í mörg ár. Þar var Ingimar Eydal kóngurinn og sá um flest böllin með hljómsveit sinni. Svo áttu leiðir okkar Gulla eftir að liggja saman seinna, þegar hann leigði af mér í Hamborg (húsið sem er beint á móti Bautanum). En það er önnur saga.

Með Jóni Bjarnasyni í Cesar.
Í Sjallanum hitti ég Gulla. Hann var þá búinn að stofna Karnabæ með Jóni Baldurs uppi á horni Týsgötu og Skólavörðustígs. Þeir hættu síðan að vinna saman og Björn Pétursson, eldri maður, kom inn í reksturinn með peninga sem tryggðu áframhald.
Gulli var bara á Akureyri til að skemmta sér og mætti í Sjallann á laugardagskvöld. Það var tilviljun að við hittumst en þessi tilviljun átti eftir að breyta miklu í mínu lífi. Hann var þá að byggja upp net verslana um allt land. Karnabær var orðinn stórveldi á íslenskum tískumarkaði með umboðsmenn víða. Hann var að leita að einhverjum til að koma með sér í rekstur á Akureyri. Þarna kviknaði hugmyndin að Cesar. Hugmyndin varð til í Sjallanum, sem var sennilega viðeigandi. Það sem eftir stóð var að útfæra eignarhaldið og finna húsnæði. Ég fór svo suður skömmu síðar og hitti þá sem voru með honum í rekstrinum og þar gengum við frá samningum.
Til að byrja með áttum við þetta saman. Faco var með í eigendahópnum fyrst og hlutunum skipt jafnt, en svo vorum við bara tveir. Faco var í raun lítil búð á Laugaveginum, en Gulli var miklu stærri. Hann var með búðir úti um allt og saumastofu þar sem Colin Porter stjórnaði. Þeir keyptu allt efnið á Akureyri hjá Gefjun og voru langstærstu viðskiptavinir þar. Sænskir sérfræðingar voru fengnir til að setja upp saumastofuna og á sínum tíma var þetta ein tæknilegasta saumastofa í Evrópu. Belgjagerðin var líka stór samstarfsaðili – fyrirtæki sem síðar varð 66°Norður. Þetta var eðlilegt á þessum árum. Nú er þetta meira og minna allt flutt til Kína.
Akureyri var iðnaðarbær á þessum tíma og Kaupfélagið stjórnaði öllu. Það var ekkert auðvelt að hefja nýjan rekstur í bænum og alls ekki sjálfgefið að fá húsnæði undir verslun. Það var lítið um pláss og ekki mikil spenna fyrir því að hleypa nýjum mönnum að. Ég var samt algjörlega ákveðinn í að þetta væri það sem ég þyrfti að gera. Ég hafði áður fengið að búa í íbúð hjá Oddi apótekara gegn því að gera hana upp, og það hafði gengið mjög vel. Oddur átti hús í Hafnarstrætinu, aðeins ofan við götuna. Þar voru rakarar, en húsið var nánast að hruni komið. Ég sagði við hann að ég væri með hugmynd um að breyta húsinu og opna þar tískubúð. Ég sæi um að gera húsið upp gegn því að fá það til afnota. Hann féllst á það.
Ég lét teikna og skrifa samninginn – og þá hætti hann skyndilega við, án skýringa. Síðar komst ég að því að JMJ vildi ekki fá mig í götuna. Hann var ekki spenntur fyrir að fá samkeppni. Það voru menn sem vissu hvernig þessum málum var háttað og sögðu mér það. Það gerði mig bara enn ákveðnari í að finna pláss.
Þá dreymdi mig undarlegan draum. Ég var að skafa gólf sem var allt úti í málningu og skít. Ég skóf af fullum krafti og þá losnaði klumpur. Ég tók hann upp og strauk utan af honum – og undir var skíragull. Ég vaknaði um morguninn og sagði við Kollu: „Ég ætla ekki að hætta fyrr en ég finn húsnæði. Ég skal.“ Var þó búinn að reyna alls staðar og mér fannst nánast eins og það væri ekki pláss fyrir þessa búð á Akureyri.

Fyrir utan verslunina Cesar í Hafnarstræti.
Ég vissi samt af einu plássi á Skipagötunni. Þar var Benni málari með litla búð. Það var lítið að gera hjá honum og margir sáu að þetta myndi sennilega ekki ganga til lengdar, en hann vildi alls ekki leigja neinum. Margir höfðu reynt og alltaf fengið nei.
Búðin var skrítin. Þarna voru dagblöð frá 1930 í stöflum og lítið var selt. En ég fór að venja komur mínar þangað. Keypti kannski pensil og eina dós af málningu, spjallaði við hann. Næst keypti ég terpentínu. Sat aðeins hjá honum. Smám saman áttaði ég mig á því að hann hafði ekki mikinn áhuga á rekstrinum sjálfum – hann vildi halda búðinni til að hitta vini sína og spjalla.
Við kynntumst og loks fékk ég hann til að leigja mér hluta af plássinu. Ekki mikið, en nóg til að opna búð. Hann hélt sínu og gat áfram setið og spjallað við vini sína. Ég innréttaði búðina sjálfur og smíðaði allt í hana. Þegar loks allt var tilbúið og ekkert eftir nema að opna var dagurinn kominn. Það var 21. maí 1971.