Fara í efni
Mannlíf

Afslappað andrúmsloft í brakandi blíðu

Sumar- og bjórhátið LYST í Lystigarðinum virðist hafa fest sig í sessi, en hátíðin fór fram í fjórða skipti um liðna helgi í sannkölluðu blíðskaparveðri.

Hátíðin hefur verið með svipuðu sniði ár frá ári, tónlist, bjór og aðrar veitingar, samstarf við nokkra bari um tilboð fyrir armbandshafa og vinsælar búðir með svokallað pop up. Andrúmsloftið er afslappað, maður er manns gaman, bestu brugghús landsins með bjórsmakk og ljúfir djasstónar sem berast úr skálanum. Hátíðin var tvískipt að venju, annars vegar kl. 13-18 þar sem meðal annars var boðið upp á lifandi djass með tríói Thomas Hering. Um kvöldið voru svo útitónleikar með Daða Frey og félögum, ásamt Sturla Atlasi.

Útsendari frá akureyri.net rölti einn hring eða tvo um svæðið síðdegis á laugardaginn og smellti af meðfylgjandi myndum.