Fara í efni
Mannlíf

Af birkiskógum og beit á Íslandi

„Af þeim löndum sem við helst miðum okkur við er Ísland meðal þeirra sem hafa einna minnstu skógarþekju, enda er landið með skógarsnauðustu löndum í heimi. Aðeins um 2% landsins er vaxið skógi eða kjarri. Þar af vex birki á 1,5% landsins. Í þeirri tölu eru bæði birkiskógar og birkikjarr sem er það lágvaxið að það telst ekki til skóga samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum.“

Þannig hefst pistill Sigurðar Arnarson í röðinni Tré vikunnar sem birtist á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga í dag og akureyri.net birtir hlut af að vanda.

Sigurður nefnir að birki sé sú trjátegund sem mest er plantað af á Íslandi þessi misserin. „Því er bæði plantað þar sem ætlast er til að upp vaxi birkiskógar eða -kjarr og þar sem væntanlega verða blandskógar. Því er einnig plantað til skrauts í jaðra skógræktarsvæða.“

Pistill Sigurðar í dag: Birki og beit