Fara í efni
Mannlíf

Ævintýraheimur skáta að Hömrum – MYNDIR

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Landsmót skáta var sett í gærkvöld að Hömrum, útilífsmiðstöð skáta á Akureyri. Þar verða saman komnir um 2000 skátar til sunnudags, bæði víðs vegar af Íslandi og gestir frá 10 öðrum löndum. Þátttakendur á mótinu eru á aldrinum 10 til 17 ára en einnig er þar fjöldi sjálfboðaliða 18 ára og eldri.

„Á Landsmóti skáta skapast ævintýraheimur þar sem hvert félag byggir upp tjaldbúð þar sem skátarnir búa í vikutíma. Það reynir á skátana og mörg fara út fyrir þægindarammann sinn þegar þau fara í fyrsta sinn á skátamót og dvelja í tjaldi með öðrum,“ segir á vef mótsins.

„Skátarnir fá tækifæri til að kynnast ólíkum einstaklingum og mynda ný vinatengsl. Skátamót eru ein af lykilstoðum skátastarfs því þar gefst okkur kostur á að efla leiðtogahæfni og skapandi huga. Úti í náttúrunni getur skátinn fundið tengingu við umhverfið og eigin tilveru. Við tökumst á við krefjandi áskoranir sem styrkja sjálfstraust, ábyrgð og þekkingu okkar.“

Fjölbreytt og ævintýraleg dagskrá er framundan og ekki á vafi á því að skemmtilegar dagar eru framundan ef marka má stemningu að Hömrum í gærkvöldi.