Fara í efni
Mannlíf

Ævintýragarðurinn opnaður á morgun

Garðurinn hans Hreins Halldórssonar við Oddeyrargötu 17 er sannkölluð ævintýraveröld og dregur að sér fjölda gesta yfir sumarmánuðina.

Hreinn Halldórsson alþýðulistamaður opnar Ævintýragarð sinn laugardaginn 23. maí og er þetta fimmta sumarið í röð sem garðurinn hans við Oddeyrargötu 17 er opinn gestum og gangandi. Opið er alla daga frá kl. 10:00-20:00, aðgangur er ókeypis og myndatökur leyfðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hreini.

„Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Með það í huga hef ég á síðustu árum skapað hin ýmsu verk sem eru staðsett í garðinum mínum. Garðurinn er því einkagalleríið mitt, lifandi undir berum himni þar sem lofthæðin er endalaus og lýsingin síbreytileg,“ segir Hreinn.

Hreinn segir að meginuppistaðan í verkum hans sé gagnvarið timbur eða pallaefni sem myndar útlínur persóna og dýra. Verkin eru öll heilmáluð og oft með skrautkornum sem sett eru í blauta málninguna til að fá aðra ásýnd eða kalla fram önnur litaáhrif. Skreytiefni er mjög fjölbreytt bæði í efnisvali og lit og hann segir of langt mál að telja það allt upp en nefna mætti skipadúk (bræludúk), nælonbönd, bólsturnagla, jólaskraut, kvenskart, haldföng og ýmsa gamla nytjahluti sem fengnir eru á nytjamörkuðum og fá nýtt hlutverk á verkunum.

Þar sem öll verkin eru úti undir berum himni yfir sumarið myndast mikil viðhaldsþörf sem Hreinn sinnir yfir veturinn, ásamt því að skapa ný verk. Flest verkin tengjast gömlum klassískum ævintýrapersónum í bland við þjóðlegan fróðleik. 

Dimmalimm og Þyrnirós fengu nýjan alklæðnað í vetur og Dimmalimm nýtt höfuð og hár að auki.

Um helmingur erlendir ferðamenn

Fyrir fjórum árum opnaði Hreinn fyrst fyrir aðgang að garðinum sínum, eftir að hafa fundið fyrir áhuga fólks á að skoða verkin, og er komandi sumar því fimmta sumarið sem garðurinn er opinn. Hann segist telja að um helmingur gesta sé erlendir ferðamenn, bæði á eigin vegum og í skipulögðum hópferðum, en flestar ferðaskrifstofur sem fara með hópa í hringferð um landið heimsækja Ævintýragarðinn. Hreinn segir að sér hafi komið þægilega á óvart að stór hluti gestanna sem heimsæki garðinn sé eldri borgarar og því hefur hann sett upp handrið á fjórum stöðum í garðinum til að auðvelda fólki umgengni.

Nýtt verk sem Hreinn skapaði í vetur – Dagbjört sem situr á sparksleða.

Við öll verkin er texti bæði á íslensku og ensku sem fjallar um viðkomandi verk. Í íslenska textanum er mjög oft hluti úr kvæði eða vísu og/eða sönglag sem flestir kannast við og fjallar þá um viðkomandi verk.

„Ég hef verið með gestabók í gróðurhúsinu í garðinum og á síðasta sumri fylltust þrjár gestabækur af þökkum frá ferðamönnum alls staðar að úr heiminum. Sumt get ég reyndar ekki lesið því það er skrifað á kínversku eða tungumálum sem ég kann engin skil á – en gaman engu að síður,“ segir Hreinn Halldórsson alþýðulistamaður.